Markaður fyrir endurnýttan tölvubúnað vex hraðar en nokkru sinni fyrr. Sérfræðingar spá fyrir um að hlutfall endurnýttra tækja í skrifstofuumhverfi muni nærri tvöfaldast fram til ársins 2030 — og á Íslandi eru fyrirtæki farin að taka þessa þróun alvarlega.
Á heimsvísu hefur markaður fyrir endurnýttar tölvur (refurbished PC) tekið stökk. Samkvæmt skýrslu Grand View Research (Refurbished PC Market Size & Growth Report, 2024) nam markaðsvirði þessa geira um 11,4 milljörðum Bandaríkjadala árið 2023. Sama skýrsla spáir 13,5% álegum vexti (CAGR) fram til ársins 2030, sem þýðir að markaðurinn mun nærri tvöfaldast á þessum tíma og nálgast 27 milljarða dollara.
IDC (International Data Corporation) hefur fylgst með þróun á refurbished PC-markaðnum og mat þeirra er í samræmi við Grand View Research. Samkvæmt greiningu IDC er hlutfall endurnýttra tölva í skrifstofuumhverfi um 10–12% á heimsvísu í dag, og spár gera ráð fyrir að þetta hlutfall hækki í 17–20% árið 2030 — þar dregur Evrópa í kringum regluverk sitt og vaxandi sjálfbærnikröfur.
| LYKILMÆLIKVARÐAR • Markaður refurbished tölva 2023: ~11,4 milljarðar USD • Spáð markaðsvirði 2030: 22–27 milljarðar USD (CAGR 10,5–13,5%) • Hlutfall í skrifstofuumhverfi 2024: ~10–12% | Spá 2030: ~17–20% • Verðmunur á refurbished vs. nýjum tækjum: 30–50% |
Af hverju á þessi vöxtur sér stað?
Þrír meginþættir liggja til grundvallar þessari þróun.
Umhverfis- og sjálfbærnikröfur
ESB-reglur um sjálfbærni — meðal annars EU Green Deal og Ecodesign-reglugerðir — þrýsta á fyrirtæki að framlengja líftíma tækja sinna. Samkvæmt European Environment Agency er rafrænt sorp (e-waste) hraðvaxandi flokkur hættulegrar úrgangs á heimsvísu — um 53,6 milljón tonn voru framleidd árið 2019 og UNITAR (United Nations Institute for Training and Research) spáir fyrir um 74 milljón tonn árið 2030. Að skipta út tölvum á þriggja ára fresti er orðið pólitískt mál og mörg fyrirtæki eru farin að íhuga stefnu í þeim efnum.
Hagkvæm gildi
Verðbólga og hækkandi innkaupakostnaður hefur gert refurbished tæki mun meia aðlaðandi. Samkvæmt greiningu Gartner geta fyrirtæki sparað 30–50% í tæknibúnaðarkostnaði með því að kaupa endurnýtt búnað í stað nýs. Það eru einkum lítil og meðalstór fyrirtæki (SMB) sem hafa leitt slíka þróun.
ITAD og fagleg endurnýting
IT Asset Disposition (ITAD) — skipulögð meðhöndlun á gömlu tæknibúnaðinum — er að þroskast sem iðnaður. Stærri fyrirtæki eru að setja upp formlegar endurnýtingarferlar þar sem gamlar tölvur eru metnar, uppfærðar og seldar aftur í gegnum vottuð endursöluferli. HP leggur mikla áherslu á endurnýtingu í gegnum HP Refurbished Certified.

Íslensk fyrirtæki eru að vakna
Verulegur áhugi er á endurnýttum búnaði hjá fyrirtækjum hér á landi. Það sem var áður litið á sem síðasta úrræði er nú orðið meðvitað val. Fyrirtæki og stofnnair eru farin að gera sér grein fyrir fyrirtæki eins og HP gera strangar körfur til þeirra endurnýttra HP tölva sem koma aftur á markaðinn, svo sem þegar kemur að uppsetningu og ísetningu á varahlutum.
Þrír þættir koma upp aftur og aftur í samræðum við viðskiptavini: verð, sjálfbærni og vottanir. Verðmunurinn er áþreifanlegur — fyrirtæki geta fjárfest í 30–40% fleiri tækjum fyrir sama fjármagn. Sjálfbærnihlutinn er sérstaklega áhugaverður; margar íslenskar stofnanir eru að þróa umhverfisstefnur og refurbished búnaður styður vel við slíka vegferð. HP hefur sem dæmi lagt mikla áherslu á að þeir aðilar sem bjóða endurnýttar HP tölvur séu HP Certefied eða vottaðir eftir þeim ströngu ferlum sem fyrirtækið setur.
Það er alls ekkert ólíklegt að refurbished búnaður verði eðlilegur hluti af öllum stærri innkaupastefnum á Íslandi árið 2030. Slíkt er að eiga sér stað víða í Evrópu og ekki síst á Norðurlöndunum þar sem innkaup eru þegar farin að krefjast sjálfbærrar tæknilausnar. Það má því búast við að hringrásarhagkerfið fyrir tölvubúnað muni vaxa, hvort sem fyrirtæki setja sér stefnu um að hluti tölvubúnaðar sé endurnýttur eða gefi notuðum tölvum nýtt líf annars staðar.
Hvað þýðir þetta fyrir íslensk fyrirtæki?
Þróunin er skýr: refurbished tölvur eru ekki lengur lausn fyrir þá sem eru að spara peninga á kostnað gæða — þær eru strategískt val fyrir þau fyrirtæki sem vilja hámarksvirði, lágmarks umhverfisáhrif og áreiðanlegar tæknilegar lausnir. Með sterkum vexti á heimsvísu og breyttu regluverki er því spáð að hlutfall endurnýttra tölva í skrifstofuumhverfi í Evrópu muni nálgast 20% árið 2030 — samanborið við um 10–12% í dag.
Fyrir íslensk fyrirtæki sem eru að endurskoða tæknistefnu sína — hvort sem er vegna sparnaðarmarkmiða, sjálfbærniskuldbindinga eða einfaldlega þess að gera meira fyrir minni — er þetta vert að skoða nánar.
HEIMILDIR
Grand View Research (2024): Refurbished PC Market Size, Share & Trends Analysis Report, 2024–2030. grandviewresearch.com
IDC (International Data Corporation): Greining á refurbished PC-markaði og hlutfallsspár. idc.com
UNITAR / Global E-waste Monitor (2020): The Global E-waste Monitor 2020 — Quantities, Flows and the Circular Economy Potential. unitar.org
Gartner: Greining á kostnaðarmun endurnýtts og nýs tæknibúnaðar. gartner.com
European Environment Agency (2023): Waste — electrical and electronic equipment (WEEE). eea.europa.eu





