11.08.2026

Netógnir munu breytast á næstu mánuðum

Forstjórar netöryggisstofnana Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálands vara við því að ný kynslóð gervigreindarlíkana muni breyta bæði sóknar- og varnargetu í netöryggismálum.

Stofnanirnar fimm, sem tilheyra svokölluðu Five Eyes samstarfi, undirrituðu nýlega sameiginlega yfirlýsingu þar sem bent er á að breytingarnar geti átt sér stað á næstu mánuðum fremur en árum.

Arnar Gunnarsson, öryggisstjóri OK, segir athyglisvert að allir fimm forstjórarnir setji nöfn sín undir sömu opinberu aðvörunina.

„Það gerist almennt ekki nema þegar stofnanirnar telja að ógnin sé að breyta eðli vandans, en ekki aðeins umfangi hans.“

Netöryggi er rekstraráhætta

Að mati Arnars undirstrikar yfirlýsingin að netöryggi sé ekki lengur eingöngu tæknilegt verkefni.

„Netöryggi er ekki lengur tæknilegt verkefni sem hægt er að geyma niðri í kjallara, heldur grundvallaráhætta í rekstri fyrirtækja og í beinni ábyrgð stjórnenda og stjórna þeirra.“

Hann segir mikilvægt að fyrirtæki bregðist við þróuninni núna. Þar þurfi meðal annars að horfa til úreltra kerfa sem geti orðið auðveld skotmörk þegar árásargeta þróast áfram.

Ísland er hluti af sama stafræna vistkerfi

Ísland stendur ekki utan þessarar þróunar. Að mati Arnars erum við hluti af sama stafræna vistkerfi og ríkin fimm vara við og smæð landsins gerir okkur ekki ósýnileg fyrir netógnum.

Hann segir því mikilvægt að stjórnendur og stjórnir fyrirtækja skoði hvaða breytingar hafi þegar verið gerðar til að bregðast við nýrri stöðu.

„Spurningin sem hver einasta stjórn fyrirtækja og stofnana ætti að spyrja sig núna er einföld: Hverju breyttum við hjá okkur á síðustu mánuðum til að mæta þessari nýju stöðu? Ef svarið er „ekki mikið“ þá er tíminn til að breyta því núna, ekki á næsta ári eða á næsta ársfjórðungi.“

Deildu færslu

Nýjasta bloggfærsla