Fyrirtæki geta nú prófað Microsoft 365 Copilot Business í 30 daga og séð hvernig lausnin nýtist í daglegu starfi.
Microsoft hefur sett af stað Copilot in 30, sem gerir fyrirtækjum kleift að prófa Microsoft 365 Copilot Business með afmörkuðum hópi notenda áður en tekin er ákvörðun um áframhaldandi notkun.
Prufuáskriftin er í boði fyrir allt að 25 notendur í 30 daga.
Aðstoð við innleiðingu
Með prufunni fylgja verkfæri og efni frá Microsoft sem auðvelda fyrstu skrefin. Þar á meðal er 30 daga Success Planner sem hjálpar til við að velja notendur og verkefni sem henta vel fyrir Copilot.
Einnig fylgja leiðbeiningar fyrir stjórnendur og notendur, tillögur að mælikvörðum og efni sem styður við innleiðinguna.
Þannig geta fyrirtæki prófað Copilot í eigin starfsemi og metið hvar lausnin getur sparað tíma og einfaldað verkefni.
Prófaðu áður en þú tekur ákvörðun
Prufan hentar fyrirtækjum sem vilja byrja með afmarkaðan hóp og sjá hvernig Copilot nýtist áður en tekin er ákvörðun um stærri innleiðingu.
OK getur aðstoðað við uppsetningu og virkjun prufunnar, val á notendum og fyrstu skrefin.
Hafðu samband við sérfræðinga OK ef þú vilt prófa Microsoft 365 Copilot Business eða fá frekari upplýsingar.




