10.09.2026

Fyrirtæki þurfa að setja „beisli“ á gervigreindina

Gervigreind er orðin hluti af daglegu starfi margra fyrirtækja en aukinni notkun fylgja nýjar öryggisáskoranir. Arnar S. Gunnarsson, forstöðumaður öryggislausna OK, ræddi við mbl.is um mikilvægi þess að fyrirtæki setji skýrar reglur um notkun gervigreindar og hvaða upplýsingum hún fær aðgang að.

Fyrirtæki nýta gervigreind í sífellt fleiri verkefni og tæknin getur í dag sinnt ýmsu sem áður var á höndum starfsfólks. Með aukinni notkun þarf þó að huga vel að öryggi og því hvaða aðgang tæknin fær að upplýsingum og kerfum fyrirtækja.

Í viðtali við mbl.is bendir Arnar S. Gunnarsson, forstöðumaður öryggislausna OK, á að netárásir beinist í auknum mæli að fólki í stað þess að reynt sé að brjótast beint í gegnum tæknilegar varnir. Sömu aðferðum sé einnig hægt að beita gegn gervigreind.

Skýrar reglur um notkun gervigreindar

Að sögn Arnars skortir enn hjá mörgum fyrirtækjum skýrar reglur um notkun gervigreindar. Mikilvægt sé að ákveða hvar, hvenær og hvernig starfsfólk megi nýta tæknina og tryggja jafnframt fræðslu um örugga notkun.

„Ég hvet alla til að nota gervigreind. En við verðum að setja á hana beisli,“ segir Arnar.

Setja þurfi skýrar skorður um hvað gervigreindin má gera, hvaða upplýsingum hún hefur aðgang að og hvernig hún vinnur með þær.

Viðkvæmar upplýsingar eiga ekki heima í opnum gervigreindarþjónustum

Sérstaklega þarf að gæta að því hvaða upplýsingar eru settar inn í gervigreindarþjónustur á netinu. Persónugögn, viðkvæmar fyrirtækjaupplýsingar og upplýsingar um viðskiptavini eiga ekki heima í slíkum þjónustum.

Arnar bendir jafnframt á að persónuverndarstillingar þjónustanna geti breyst og því þurfi bæði fyrirtæki og notendur að fylgjast með þeim og átta sig á því hvernig farið er með gögnin sem sett eru inn.

Viðtalið við Arnar má lesa í heild sinni á mbl.is.

Deildu færslu

Nýjasta bloggfærsla