Bekkurinn var þéttsetinn hjá OK þegar Nikita Wei, lausnaráðgjafi frá Yealink, hélt erindi um þau þáttaskil sem eiga sér stað í fundalausnum hjá kínverska fyrirtækinu. Yealink hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum og er orðið leiðandi lausn í fundarrýmum hér á landi. Nú hefur það bætt við sig fleiri lausnum sem sagt var frá á fundinum.
Þar má nefna AV-ONE, sem sameinar fundarbúnað herbergisins í eina heild í stað margra aðskilinna tækja, og YMCS, sem er miðlægt kerfi þar sem öll fundarherbergi fyrirtækis eru stýrð og vöktuð úr einu viðmóti. Þá steig Heimir Sveinsson, sérfræðingur í stafrænni þróun hjá Landsvirkjun, í pontu og sagði frá reynslu fyrirtækisins af Yealink-búnaði í gegnum árin. Hann rakti farsælt samstarf við OK um hönnun, uppsetningu og rekstur fundarrýma Landsvirkjunar — og hvað það hefur þurft að þróast í takt við breyttar fundarvenjur starfsfólks.
„Sambandið við Yealink er afar sterkt og hefur þróast stig af stigi í mörg ár. Við þekkjum búnaðinn einkar vel og það skilar sér til viðskiptavina í heildarlausn þar sem tækin, uppsetningin og reksturinn haldast í hendur,“ segir Kristinn Helgason, vörustjóri Hljóð- og myndlausna hjá OK. „Gott samstarf snýst um miklu meira en bara vörukaup viðskiptavinar. Það snýst um að veita rétta ráðgjöf frá upphafi, sníða lausnina að raunverulegum þörfum og fylgja henni eftir í rekstri svo viðskiptavinurinn fái hámarksafköst úr sinni fjárfestingu,“ segir Kristinn.




