08.10.2026

3 metra breiður skjár bætir yfirsýn neyðarstjórnar Isavia

Nýr þriggja metra breiður LED-skjár frá Optoma kemur nú í stað fjögurra eldri skjáa í stjórnstöð AVIANS, þar sem neyðarstjórn Isavia kemur saman. Skjárinn er hluti af heildaruppfærslu fundarýmisins og gjörbreytir því hvernig neyðarstjórnin hefur yfirsýn og tekur ákvarðanir.

Rýmið styður við starf neyðarstjórnar þegar stórir og ófyrirséðir atburðir hafa áhrif á flugstarfsemi, svo sem jarðskjálftar, eldgos og umfangsmiklir alþjóðlegir viðburðir. „Við slíkar aðstæður skiptir miklu máli að stjórnendur hafi skýra yfirsýn og geti nálgast fjölbreyttar upplýsingar hratt og örugglega,“ segir Ólafur Jóns Eggertsson, kerfisstjóri hjá AVIANS, sem annast flugleiðsöguþjónustu á Íslandi og stjórnar flugumferð yfir einu stærsta flugstjórnarsvæði í heimi.

Hann segir að tæknibúnaður rýmisins hafi verið kominn til ára sinna og því hafi verið leitað til tæknifyrirtækisins OK um nýja útfærslu. „Nýja lausnin þurfti að geta tekið við og birt marga upplýsingastrauma samtímis, meðal annars frá fjarfundabúnaði, myndavélakerfum, flugupplýsingakerfum og vöktun vegna jarðskjálfta og eldgosa. Mikil áhersla var lögð á að lausnin væri einföld og áreiðanleg í notkun – í raun „plug and play“ – enda þarf tæknin að virka fumlaust þegar mest á reynir,“ segir Ólafur Jóns.

„Stórir skjáfletir gera neyðarstjórninni nú kleift að hafa margar upplýsingaveitur fyrir augunum samtímis og fá góða heildaryfirsýn yfir stöðuna hverju sinni. Jafnframt var lögð rík áhersla á fyrsta flokks hljóð- og hljóðnemalausnir, enda skipta skýr samskipti sköpum í störfum neyðarstjórnar. Fundir ganga hraðar og betur fyrir sig – allir sjá sömu gögnin skýrt á einum stað og hægt er að bera saman mörg kerfi hlið við hlið án þess að skipta á milli skjáa,“ bætir hann við.

Þegar neyðarstjórnin er ekki að störfum nýtist rýmið sem fullbúið Microsoft Teams-fundarherbergi fyrir dagleg fundahöld skrifstofufólks og flugumferðarstjóra.

„Við innleiðinguna var haft að leiðarljósi að tæknin ætti að vera einföld og áreiðanleg. Lausnin var sniðin að þörfum stjórnstöðvarinnar frá fyrsta degi og útkoman talar sínu máli: starfsfólk AVIANS hefur nú allt á einum stað og getur einbeitt sér óskipt að verkefnunum,“ segir Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK.

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir