Í áratugi höfum við verið „forrituð“ til að halda að eina rétta leiðin til að halda vinnustaðnum skilvirkum sé að kaupa glæný tæki á 3–4 ára fresti. En tækniheimurinn er að breytast – hratt.
Stærstu tölvuframleiðendur heims hafa tekið sjálfbærni opnum örmum. Í stað þess að einblína eingöngu á ný tæki leggja þeir nú ríka áherslu á að gefa tæknibúnaði framhaldslíf með sölu á vottuðum endurnýjuðum vélum (e. Certified Refurbished).
Um leið hafa fyrirtæki og stofnanir í vaxandi mæli valið endurnýjaðar fartölvur sem aðal vinnutæki starfsfólks og greiningaraðilar spá áframhaldandi vexti út áratuginn.
Vöxturinn í tölum
- Sala á endurnýjuðum tölvum í gegnum dreifingaraðila á stærstu markaðssvæðum Evrópu jókst um 7% á síðasta ársfjórðungi 2025 og í Bretlandi tvöfaldaðist salan á árinu 2025.
- Á fyrsta ársfjórðungi 2026 jukust tekjur af endurnýjuðum tölvum um 10% milli ára og sala á endurnýjuðum fartölvum jókst um 12%, samkvæmt greiningarfyrirtækinu CONTEXT.
- Nærri 70% seldra endurnýjaðra fartölva eru með 16 GB vinnsluminni eða meira.
Hvert stefnir markaðurinn til 2030?
MarkNtel Advisors mat heimsmarkaðinn fyrir endurnýjaðar tölvur á um 8,3 milljarða Bandaríkjadala árið 2024. Fyrirtækið spáir að hann nái um 14,3 milljörðum dala árið 2030, sem jafngildir um 9,6% árlegum vexti. Aðrir greiningaraðilar eru varfærnari: Global Market Insights spáir um 6% árlegum vexti og Mordor Intelligence nær 10%. Allir eru þó sammála um hvert stefnir: markaðurinn mun vaxa verulega fram til 2030.
Af hverju velja fyrirtæki nú endurnýtt?
- Sjálfbærnimarkmið. Stærstur hluti kolefnisspors tölvu verður til við framleiðsluna og lengri líftími raftækja dregur verulega úr umhverfisáhrifum þeirra. Mordor Intelligence nefnir sjálfbærnistefnu fyrirtækja (ESG) sem einn helsta drifkraft markaðarins.
- Opinber innkaup. Græn innkaup í Evrópu eru farin að gera ráð fyrir endurnýjuðum búnaði. Á Ítalíu þarf nú a.m.k. 10% tölvubúnaðar í opinberum innkaupum að vera endurnýjaður.
- Gæðin eru til staðar. Stór hluti endurnýjaðra tölva kemur úr tölvuflota fyrirtækja; sem eru vandaðar fyrirtækjatölvur sem eiga enn nokkur ár eftir.
- Hærra verð á nýjum tölvum. Ástæðan er aðallega skortur á minniskubbum, sem fara í gagnaver fyrir gervigreind, að mati IDC.
HP dregur vagninn
HP er tallinn stærsti aðilinn þegar kemur að endurnýttum tölvum að mati Global Market Insights. HP er með um 16% hlutdeild. Á eftir koma Dell og Apple (um 13% hvor). Forskotið er enn meira í Evrópu en samkvæmt CONTEXT var HP með um helming evrópska markaðarins á fyrsta ársfjórðungi 2026.




