Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása hf. á öllu hlutafé í Opnum kerfum hf. (OK).
Ásar hafa lýst því yfir að ekki séu áform um að breyta því fyrirkomulagi að félögin séu rekin sem dótturfélög samstæðunnar.
OK mun áfram starfa sem sjálfstætt félag. Rekstur félagsins, þjónusta við viðskiptavini og núverandi samningar haldast óbreyttir.
„Þessi breyting hefur ekki áhrif á daglegan rekstur OK. Við munum áfram leggja áherslu á trausta þjónustu við viðskiptavini okkar,“ segir Gunnar Zoega, forstjóri OK.
Gert er ráð fyrir að viðskiptunum verði lokið á næstu vikum.




