21.10.2026

OK stenst árlega eftirlitsúttekt vegna ISO 27001 vottunar

Opin kerfi (OK) hefur lokið árlegri eftirlitsúttekt BSI vegna ISO/IEC 27001:2022 vottunar fyrirtækisins. Niðurstaða úttektarinnar var jákvæð og er vottunin áfram í gildi.

ISO/IEC 27001 er alþjóðlegur staðall um stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Vottun samkvæmt honum gildir í þrjú ár og á milli endurvottana fara fram árlegar eftirlitsúttektir þar sem óháður úttektaraðili staðfestir að stjórnkerfið sé virkt og í stöðugri þróun. OK fór í gegnum fulla endurvottunarúttekt á síðasta ári.

„Vottunin sjálf er ekki markmið sem slíkt, heldur staðfesting á því að við vinnum markvisst og af ábyrgð með kerfi og gögn viðskiptavina okkar. Við höfum lagt mikla vinnu í að einfalda stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá okkur og gera það skýrara og einfaldara í daglegu starfi fyrir starfsfólk okkar. Þessi niðurstaða er fyrst og fremst árangur starfsfólks OK. Öryggi er sameiginlegt verkefni og ég er þakklátur fyrir þann metnað og þá fagmennsku sem fólkið okkar sýnir á hverjum degi,“ segir Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK.

Fjöldi fyrirtækja og stofnana treystir OK fyrir rekstri mikilvægra tölvukerfa og gagna. Vottunin staðfestir mikilvægi upplýsingaöryggis hjá OK, að því sé stýrt með kerfisbundnum hætti og að verndun gagna fyrirtækisins og viðskiptavina þess sé í forgangi.

Deila frétt

Nýjustu fréttir