Aðeins 27 sekúndur liðu frá því að tölvuþrjótur náði fótfestu í einni tölvu þar til hann komst í þá næstu, að þvi er fram kemur í gögnum netöryggisfyrirtækisins CrowdStrike. Um er að ræða hraðasta tilvik sem fyrirtækið hefur mælt. Á 27 sekúndum nær varla nokkurt fyrirtæki að bregðast við stöðunni, segir öryggissérfræðingur hjá OK.
Ingólfur Ágústsson, netsérfræðingur hjá OK, segir að tilkoma gerivgreindar í tölvuinnbrotum breyti því hvernig stjórnendur þurfa að hugsa um netöryggi. Spurningin sé ekki lengur bara hvernig eigi að koma í veg fyrir árás, heldur hvað gerist þegar öryggið bregst.
„Það sem hefur breyst er hraðinn. Árásaraðilar geta nýtt sjálfvirkni og gervigreind til að vinna ákveðna hluta árásar mun hraðar en áður, til dæmis við að finna veikleika, safna upplýsingum og kortleggja kerfi.
Samkvæmt CrowdStrike er meðaltíminn frá því að árásaraðili náði fótfestu í einni tölvu þar til hann færist yfir í aðra kominn niður í 29 mínútur. Hraðasta tilvikið sem mældist voru 27 sekúndur.
„Ef viðbragðsferlið hjá fyrirtækinu hefst á því að finna rétta fólkið, stofna Teams-fund og ræða hver megi taka ákvörðun getur árásaraðilinn þegar verið kominn enn lengra. Ég myndi segja að fyrirtæki eigi að gera ráð fyrir því að eitthvað muni á einhverjum tímapunkti bila, stöðvast eða verða óaðgengilegt. Ástæðan getur verið netárás, mannleg mistök eða tæknibilun.“
Hvað kostar klukkutími þegar kerfin virka ekki?
Ingólfur segir að stjórnendur þurfi um leið að geta svarað tveimur spurningum: Hvað kostar okkur hver klukkutími sem lykilkerfi liggur niðri og hversu langan tíma tekur að koma rekstrinum aftur af stað?
„Segjum að lagerkerfið stöðvist. Pantanir bíða, sendingar komast ekki úr húsi og starfsfólk þarf að finna hjáleiðir til að afgreiða viðskiptavini. Þessi staða getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtæki. Þess vegna viljum við vinna með raunverulegar tölur: Hversu lengi má bókunarkerfið, lagerkerfið eða framleiðslulínan liggja niðri áður en áhrifin verða alvarleg? Síðan kemur erfiðari spurningin: Getum við í raun endurheimt kerfið innan þess tíma? Það er heldur ekki nóg að segja að við séum með afrit. Við þurfum að hafa prófað endurheimtina,“ segir Ingólfur.




