Stjórnendur og sérfræðingar í upplýsingatækni fjölmenntu á morgunverðarfund OK og HPE á Hilton Reykjavík 7. október. Umræðuefnið var hvernig gervigreind og ný skýjatækni geta einfaldað rekstur tölvuinnviða.
Á fundinum sagði Sune Orry, sérfræðingur frá HPE, frá vegferð fyrirtækisins; frá því að vera framleiðandi netþjóna og gagnageymslulausna yfir í fyrirtæki með samþætt lausnaframboð í innviðum, skýjalausnum og gervigreind. Með HPE GreenLake og lausnum frá Juniper Networks, Morpheus Data, OpsRamp og Zerto nær framboðið nú yfir netkerfi, sjálfvirkni, vöktun og netöryggi.
Þá var fjallað um hvernig HPE nýtir svokallaða agentic AI, gervigreind sem vinnur verkefni sjálfstætt, til að draga úr handvirkri vinnu við umsýslu innviða. Einnig var sýnt hvernig nota má tæknina við flutning milli sýndarvæðingarlausna. Það mál brennur á mörgum fyrirtækjum um þessar mundir.




