Íslensk fyrirtæki kaupa endurnýttan tölvubúnað í mun meira mæli en áður. Á þessu ári hafa nær 25% allra tölva sem seldar hafa verið í netverslun OK verið endurnýttar HP-tölvur.
Guðmundur Ómarsson, vefverslunarstjóri OK, segir að fyrir fáeinum árum hefði slíkt hlutfall þótt óhugsandi. Endurnýttur búnaður hafi lengi verið álitinn neyðarúrræði, en nú séu fyrirtæki farin að velja hann af ásettu ráði.
Viðhorfið hefur breyst
„Við sáum aukninguna strax í byrjun árs og hún hefur haldist út árið. Þetta eru ekki lengur bara lítil fyrirtæki sem vantar ódýra tölvu í hvelli. Nú eru það líka stærri fyrirtæki og stofnanir sem endurnýja heilu deildirnar með endurnýttum búnaði,“ segir Guðmundur.
Hann segir að spurningar viðskiptavina hafi líka breyst. „Áður spurði fólk fyrst hvort tölvan væri ekki örugglega í lagi. Núna spyr það um ábyrgðina, rafhlöðuna og hvenær næsta sending kemur.“
Tölvurnar sem um ræðir eru HP-tölvur sem hafa verið yfirfarnar, prófaðar og hreinsaðar af gögnum samkvæmt verkferlum framleiðandans. Þeim fylgir ábyrgð, líkt og nýjum búnaði.
Verð, umhverfi og kröfur í útboðum
Að sögn Guðmundar eru ástæðurnar einkum þrjár. Sú fyrsta er kostnaður; endurnýtt tölva er á hagstæðu verði og hentar í mörg verkefni eins og einföld skrifstofustörf, tölvupóst, skjalavinnslu og fjarfundi.
Önnur ástæðan er umhverfið. Stór hluti kolefnisspors tölvu verður til við framleiðslu hennar. „Mörg fyrirtæki þurfa nú að gera grein fyrir kolefnisspori sínu og þetta er einföld leið til að minnka það,“ segir Guðmundur.
Þriðja ástæðan er að opinberir aðilar og stærri fyrirtæki horfa í auknum mæli til sjálfbærni í innkaupum. „Við finnum að innkaupadeildir spyrja orðið um endurnýttan búnað. Það var nánast óþekkt fyrir tveimur árum.“
Guðmundur telur að hlutfallið haldi áfram að aukast. „Ég held að eftir nokkur ár þyki jafn sjálfsagt að kaupa endurnýtta vinnutölvu og að kaupa notaðan bíl.“




