24.08.2026

Tæplega 100 manns á golfmóti OK í Grafarholti

Árlegt golfmót OK fór fram á Grafarholtsvelli föstudaginn 21. ágúst. Tæplega 100 manns komu saman á mótinu og áttu góðan dag á vellinum.

 

Leikfyrirkomulagið var fjögurra manna betri bolti og að leik loknum var boðið upp á hádegisverð og veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, auk nándarverðlauna og lengsta upphafshöggs.

 

„Golfmótið er einn skemmtilegasti viðburður ársins hjá okkur. Það er frábært að hitta viðskiptavini utan skrifstofunnar og eiga með þeim góðan dag í aðeins öðru umhverfi en venjulega. Við erum mjög ánægð með hvernig mótið tókst og þökkum öllum kærlega fyrir komuna,“ segir Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK.

 

Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir komuna og frábæran dag í Grafarholtinu.

 

Myndir frá mótinu má sjá hér að neðan.

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir