14.07.2026

Jabra Evolve3 fjölskyldan stækkar

Jabra hefur kynnt til sögunnar þrjú ný heyrnartól í vinsælu Evolve3 vörulínunni: Jabra Evolve3 65, Jabra Evolve3 65 Flex og Jabra Evolve3 45. Með þessum nýju heyrnartólum stækkar úrvalið enn frekar og fyrirtæki fá fleiri valkosti til að styðja við fjölbreyttar þarfir nútíma vinnuumhverfis.

Fyrr á árinu komu á markað Jabra Evolve3 85 og Jabra Evolve3 75, sem hafa hlotið fádæma góðar viðtökur fyrir framúrskarandi hljóðgæði, þægindi og áreiðanleika hvort sem er á fjarfundum eða í daglegum samskiptum. Nýju gerðirnar byggja á sömu hugmyndafræði – gera samskipti einfaldari, skýrari og þægilegri, hvort sem unnið er á skrifstofu, heima eða á ferðinni.

Ný hönnun fyrir nútíma vinnustað

Ein af stærstu nýjungunum í Evolve3 fjölskyldunni er að heyrnartólin hafa verið endurhönnuð og eru mun nútímalegri ásýndar en áður. Þau eru léttari og þynnri sem gefur þeim fágað yfirbragð án þess að skerða þægindi eða endingu. Þau falla vel að nútímalegu vinnuumhverfi þar sem þættir eins og útlit, þægindi og rafhlöðuending skipta sífellt meira máli.

Mjúkir eyrnapúðar, létt höfuðband og vandað efnisval stuðla að góðri notendaupplifun yfir allan vinnudaginn. Hönnunin gerir jafnframt heyrnartólin þægileg í langvarandi notkun, hvort sem um er að ræða fjarfundi, símtöl eða einbeitingarvinnu.

Lausnir fyrir ólíkar þarfir

Jabra Evolve3 65 er fjölhæft þráðlaust heyrnartól sem hentar vel fyrir daglega notkun í fundum, símtölum og einbeitingarvinnu. Það sameinar þægilega hönnun, skýr hljóðgæði og áreiðanlega tengingu fyrir notendur sem treysta á samskiptabúnað allan vinnudaginn.

Jabra Evolve3 65 Flex er hannað fyrir starfsfólk sem er á ferðinni eða vinnur á mismunandi stöðum. Auðvelt er að brjóta þau saman og taka með sér.

Jabra Evolve3 45 er hagkvæmur kostur fyrir fyrirtæki sem vilja útbúa starfsfólk með vönduðum samskiptabúnaði fyrir daglega notkun. Tólið hentar vel fyrir símtöl, fjarfundi og almenna tölvuvinnu þar sem skýr samskipti skipta máli.

Skrifstofuumhverið tekur breytingum

Blandað vinnufyrirkomulag (e. Hybrid Office) hefur aukið kröfur til heyrnartóla. Starfsfólk þarf að geta átt skýr samskipti óháð því hvort það vinnur á skrifstofunni, í heimavinnu eða á ferðalagi. Með Evolve3 vörulínunni býður Jabra fjölbreytt úrval heyrnartóla sem styðja við þessa þróun og gera fyrirtækjum kleift að velja lausnir sem henta mismunandi hlutverkum og starfsumhverfi.
Evolve3 vörulínan er þróuð með þarfir nútíma vinnustaðar í huga og styður við helstu samskiptalausnir fyrirtækja, þar á meðal Microsoft Teams og aðra leiðandi UC (Unified Communications) lausnir.

Helstu kostir Evolve3 fjölskyldunnar

• Nútímaleg, þynnri (slim) og léttari hönnun.
• Framúrskarandi hljóð fyrir símtöl, fundi og tónlist.
• Hljóðnematækni sem útilokar bakgrunnshávaða og skilar skýrari rödd til viðmælenda
• Þægileg hönnun sem hentar til notkunar allan vinnudaginn.
• Þráðlausar útfærslur með stöðugri Bluetooth-tengingu og fjölpunktsaðgangi þar sem við á.
• Samhæfni við Microsoft Teams og aðra helstu UC-lausnir.
• Hentar jafnt fyrir skrifstofu, heimavinnu og blandað vinnufyrirkomulag.

OK er dreifingar- og þjónustuaðili Jabra á Íslandi

OK er viðurkenndur dreifingar- og þjónustuaðili fyrir Jabra á Íslandi og býður fyrirtækjum ráðgjöf, sölu og þjónustu á öllum lausnum frá Jabra. Með öflugu úrvali heyrnartóla og sérfræðiþekkingu á vinnustaðalausnum aðstoðar OK fyrirtæki við að velja búnað sem eykur framleiðni, bætir samskipti og styður við nútímalegt vinnuumhverfi.

Hafðu samband við sérfræðinga OK (sala@ok.is / 570-1000) til að fá frekari upplýsingar um nýju Jabra Evolve3 vörulínuna og ráðgjöf um þá lausn sem hentar þínu fyrirtæki best.

Deila frétt

Nýjustu fréttir