23.02.2026

Heyrnartól fyrir síbreytilegt vinnuumhverfi

Danska fyrirtækið Jabra hefur kynnt til sögunnar heyrnartól fyrir vinnuumhverfi sem gerir notenda mögulegt að nota þau í allt að 120 klst. án þess að þurfa að hlaða þau. Um er að ræða Jabra Evolve3 85 sem gerir notendum kleift að hlusta á tónlist í allt að 120 klst. í einni hleðslu. „Evolve3 eru fyrstu heyrnartólin í sínum flokki sem ná slíkri endingu. Ending af þessum toga er sérstaklega mikilvæg fyrir fólk sem vinnur í síbreytilegu umhverfi, ferðast mikið eða vill einfaldlega losna við að vera stöðugt að hlaða,” segir Kristinn Helgason vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK.

 

Jabra Evole3 75 er nú þegar komið í sölu og Jabra Evolve3 85 kemur á næstu dögum.

 

Jabra Evolve3 85 er bæði í boði í svörtum og hvítkremuðum lit.

Nýja Evolve3-línan samanstendur af tveimur gerðum, Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (á eyru), og eru þau ætluð að brúa bilið milli hefðbundinna vinnuheyrnartóla og tónlistarheyrnartóla. Í stað hefðbundins sveigjanlegs hljóðnema  eins og í fyrri gerðum notar Evolve3 innbyggt fjölhljóðnema-kerfi með gervigreind sem einangrar rödd notandans og dregur úr umhverfishávaða í rauntíma. Þessi tækni, sem Jabra kallar ClearVoice, á að tryggja skýrari símtöl og fjarfundi án þess að fórna útliti eða þægindum. Heyrnartólin styðja einnig virka hljóðeinangrun (ANC), rúmhljóð (spatial sound) og eru vottuð fyrir helstu fjarfundakerfi á borð við Microsoft Teams og Zoom. Samkvæmt Jabra geturEvolve3 85 tryggt allt að 120 klukkustundir af tónlistarhlustun á einni hleðslu, en Evolve3 75 allt að 110 klukkustundir.

 

„Jabra Evolve3 sameinar það sem viðskiptavinir hafa lengi kallað eftir; enn betri hljóðgæði, ótrúlega rafhlöðuendingu og hönnun sem virkar jafnt í vinnu sem utan hennar. Þetta eru heyrnartól sem henta nútíma skrifstofuvinnu,“ segir Kristinn Helgason.

 

Hægt er að panta heyrnartólin hjá söludeild OK.

Jabra Evolve3 85 er bæði í boði í svörtum og hvítkremuðum lit.

Deila frétt

Nýjustu fréttir