23.09.2026

Tölvan bókar ferðlagið fyrir þig

Trausti Eiríksson, vörustjóri PC hjá OK, segir næstu kynslóð tölva munu í auknum mæli vinna verkefni sem við sinnum sjálf í dag, panta flugferðina, fara yfir póstinn eða muna hvað var ákveðið á fundinum.

„Þú situr kannski á fjarfundi og talar íslensku. Á skjánum hjá kollega þínum í Kaupmannahöfn birtist danskur texti jafnóðum. Tölvan sjálf þýðir samtalið í rauntíma, í stað þess að senda hljóðið út í einhverja þjónustu í skýinu. Þetta er ekki framtíðin, þetta er í vélum sem eru til sölu í dag. Ástæðan er lítill kubbur sem er orðinn hluti af nýjustu örgjörvunum í viðskiptatölvum: gervigreindarörgjörvi, eða NPU,“ segir Trausti.

„NPU sér um gervigreindarvinnslu í staðinn fyrir venjulega örgjörvann og gerir það á broti af því rafmagni sem það tók áður. Þess vegna getur vélin verið með þýðingu í gangi allan fundinn án þess að rafhlaðan klárist og án þess að viftan fari í gang. Þessi eiginleiki er kominn í tölvur og fólk er byrjað að nota hann án þess að hugsa út í það: myndavélin sem lagar lýsinguna á þér, textun á myndbandi, leit að skjali sem þú manst ekki hvað heitir.“

Trausti leggur áherslu á að greina þurfi á milli þess sem gerist í vélinni sjálfri og þess sem gerist í skýinu, og að sá munur skipti fyrirtæki raunverulegu máli. „Stóru líkönin, sem geta leitað að nýjustu upplýsingum á netinu, unnið úr miklu magni gagna og leyst flókin, fjölþátta verkefni, keyra áfram í skýinu og þurfa nettengingu. Það sem keyrir í vélinni þinni eru minni líkön sem gera afmarkaða hluti, en gera þá strax og án þess að gögnin fari neitt. Ég er stundum spurður hvort það sé óhætt að setja viðkvæm gögn í svona verkefni, og svarið fer alfarið eftir því hvar líkanið keyrir. Það er hægt að deila þeim í skýinu eða halda þeim inni á þinni tölvu og láta hana vinna úr gögnunum beint.“

Hann segir stærra skref fram undan: að tölvan hætti að bíða eftir hverri skipun og fari sjálf að undirbúa verkefni fyrir okkur. „Segjum að þú ætlir til Barcelona í maí. Í dag opnarðu margar vefsíður, berð saman flug, finnur hótel og bókar. Ég held að innan tíðar segirðu einfaldlega við tölvuna hvert þú vilt fara og hvenær. Hún kemur til baka með tillögu: flug, gistingu og verð, og þú samþykkir eða hafnar. Þú tekur ákvörðunina áfram, þú sleppir bara puðinu. Verkefni sem tekur hálfan vinnudag í dag verður afgreitt á nokkrum mínútum.“

Pósthólfið er annað dæmi. „Það kemur mánudagsmorgunn og tölvan segir þér: þessum þremur gleymdirðu að svara í síðustu viku, og þessi þarna er farinn að bíða óþolinmóður.“
Fundir eru dæmi þar sem þróunin er þegar hafin, að sögn Trausta. „Tölvan hlustar, skrifar niður hvað var ákveðið og hver á að gera hvað. Það er til í dag og virkar, og sparar hverjum fundarmanni dýrmætan tíma. Það sem á eftir að koma er að hún fylgi því svo eftir.“

Sama þróun sést í meðhöndlun mynda. „Fólk á fimm þúsund myndir í símanum og finnur aldrei neitt. Þú átt að geta sagt „myndirnar úr sumarbústaðnum í fyrra“ og fengið þær beint.“
Aðspurður segir Trausti að traust notenda verði lykilatriði. „Þetta virkar vel á meðan tölvan undirbýr en notandinn samþykkir alltaf síðasta skrefið. Um leið og hún fer að kaupa flugmiða upp á eigin spýtur án þess að spyrja, hættir fólk að treysta henni og þá er þetta búið.“

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir