Tæknirisinn HP hefur umbylt framleiðslu sinni til að mæta auknum kröfum um sjálfbærni. Nýjasta sjálfbærniskýrsla fyrirtækisins sýnir að tæp 50% af öllum hráefnum, sem notuð eru í vörur og umbúðir, eru endurunnin eða endurnýjanleg.
HP hefur endurnnið meira en 1,2 milljónir tonna af vélbúnaði og prenthylkjum frá árinu 2016, að því er fram kemur í skýrslunni.
Árangurinn sést vel í þeim efniviði sem notaður er framleiðslu hjá HP. Samkvæmt skýrslunni er:
- Yfir 30% af öllu plasti í tölvum og prenturum endurunnið.
- 47% af öllum efnum í vörum og umbúðum fyrirtækisins eru annaðhvort endurunnin, endurnýjuð eða af endurnýjanlegum uppruna.
Þessi árangur hefur vakið mikla athygli og því hefur greiningarfyrirtækið EcoVadis veitt HP Platínu-viðurkenningu sína í sjálfbærni 16. árið í röð. Sá árangur setur HP í hóp efstu 1% þeirra rúmlega 100.000 fyrirtækja sem metin eru á heimsvísu.
Fyrirtækið horfir þó ekki bara til umhverfisins heldur vinnur það líka að því að jafna stafrænan aðstöðumun á tímum gervigreindar. Það hefur nú þegar náð til 82 milljóna manna um allan heim með verkefnum sem veita aðgang að tækni, stafrænni færni og menntun – en lokamarkmið þeirra er að ná til 150 milljóna manna fyrir árið 2030.
Sjálfbærniskýsla HP sýnir að fyrirtækið leggur höfuðáherslu á innleiða grænar lausnir í framleiðslu á búnaði í takt við auknar kröfur notenda.




