„Gervigreindin er ekki lengur framtíðartækni. Hún er hér, hún er komin inn í tölvuna á skrifborðinu þínu og hún er þegar farin að breyta því hvernig fólk vinnur. Skýrslugerð sem áður tók daga er gerð á klukkutímum. Hönnunarvinna sem áður krafðist sérhæfðra forrita og margra ára þjálfunar er orðin aðgengileg fleirum. Greiningarvinna sem áður þurfti heilu teymin er nú framkvæmd af einum starfsmanni með rétta búnaðinn,“ segir Hans Petter Espelied, sérfræðingur frá HP, sem hélt erindi hjá tæknifyrirtækinu HP um hvernig gervigreind mun gjörbreyta vinnulagi fólks.
Ekki hægfara þróun
„Þróunin er svo hröð að mörg fyrirtæki velta því fyrir sér hvernig vinnustaðir og störf muni líta út eftir áratug eða tvo. Þótt enginn geti spáð nákvæmlega fyrir um framtíðina teikna iðnaðarspár og rannsóknarstofnanir upp nokkuð skýra mynd af því hvert stefnir,“ segir Hans Petter. „Störfin okkar munu breytast hraðar á næstu 15 árum en þau hafa gert á síðustu 50,“ segir hann. „Þetta er ekki hægfara þróun eins og við höfum séð áður — þetta er kerfisbundin breyting á því hvernig fólk vinnur, hvernig fyrirtæki keppa og hvaða færni verður eftirsóttust.“
„Gervigreindin verður samstarfsmaður, ekki bara verkfæri. Sérfræðingar — hvort sem það eru lögfræðingar, verkfræðingar, hönnuðir eða markaðsfólk — munu vinna í pörum með sínum eigin AI-aðstoðarmanni sem þekkir verkefnin þeirra, gögnin og vinnubrögðin.“
Hann segir að endurtekin verkefni muni hverfa að mestu úr daglegri rútínu. „Það sem í dag tekur klukkutíma — að taka saman skýrslu, fara yfir samninga, búa til kynningu — verður gert á örskotsstundu. Tíminn sem sparast fer í skapandi vinnu, stefnumótun og samskipti.“
Línur milli starfsgreina munu máðst út
Sérhæfing minnkar í sumum greinum, eykst í öðrum. „Sérfræðingar geta unnið með AI á sviðum þar sem þeir hefðu áður þurft margra ára nám. Á sama tíma verður meiri eftirspurn eftir fólki sem skilur hvernig á að vinna með AI — býr til rétt verklag, spyr réttu spurninganna og leggur faglegt mat á niðurstöðurnar.“
Hans Petter segir jafnframt að vinnan verði persónulegri og staðbundnari. „Þegar AI-vinnslan færist úr skýinu og inn í tölvuna á skrifborðinu þínu þýðir það að viðkvæm gögn — sjúkraskrár, fjárhagsupplýsingar, lögfræðigögn — þurfa ekki að yfirgefa fyrirtækið.“
Hann segir ennfremur að línurnar milli starfsgreina muni mást út. „Hönnuður getur kóðað. Forritari getur hannað. Markaðsfólk getur greint gögn. AI brúar bilið milli sérgreina — og fólk sem kann að nýta sér það verður eftirsóttast á vinnumarkaði. Með öðrum orðum: vinnan verður ekki endilega minni — en hún verður öðruvísi. Þeir sem læra að vinna með AI munu hafa forskot á þá sem gera það ekki. Og þeir sem hafa réttan búnað munu hafa forskot á hina.“




