Search
Close this search box.

22.07.2024

OK opnar skrifstofu að Austurvegi

OK hefur flutt starfsemi sína að Austurvegi 42 á Selfossi. Á nýja staðnum verður OK enn betur í stakk búið til að mæta þörfum viðskiptavina sinna og veita þeim sem fyrr persónulega og vandaða þjónustu þegar kemur að tæknilausnum.

OK á Suðurlandi, áður upplýsingatæknihluti TRS, býr yfir öflugum og reyndum hópi um 20 sérfræðinga, sem um árabil hefur verið bakhjarl um 330 fyrirtækja í flestum atvinnugreinum víðs vegar um landið. Starfsemin er jafnframt hluti af enn stærra teymi sérfræðinga OK á höfuðborgarsvæðinu og víðar á landinu.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá OK á Suðurlandi. Nýtt skrifstofurými veitir okkur burði til að sækja enn frekar fram en tryggja um leið að núverandi viðskiptavinir fái áfram þá persónulega þjónustu sem við erum þekkt fyrir. Okkar markmið er að styðja við fyrirtæki í nærumhverfi okkar svo að þau geti einbeitt sér að sinni starfsemi og vaxið og dafnað. Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum á nýja staðnum, en þar er opið frá kl. 8-16 alla virka daga,“ segir Karl Óskar Kristbjarnarson, rekstrarstjóri OK á Suðurlandi.

Deila frétt