31.03.2026

HP kynnir skrímslavél: Hægt að stækka með einum smelli 

Tæknirisinn HP hefur kynnt til sögunnar nýja vinnustöð, HP Z8 Fury G6i, sem er hönnuð með vinnu framtíðarinnar í huga. Tölvan kemur með tvenns konar hliðarhlíf: venjulega útgáfu og „Max“ útgáfu sem stækkar innra rými vélarinnar um 15% og bætir við aukinni kælingu.

„Engin verkfæri, ekkert vesen – bara einn smellur og tölvan er tilbúin fyrir næstu kynslóð risavaxinna skjákorta,“ segir Trausti Eiríksson, vörustjóri PC‑lausna hjá OK. Hugmyndin á bak við þessa vél er einföld: skjákort eru að verða stærri og kraftmeiri og HP hefur séð til þess að notendur þurfi ekki að grípa til véla til að búa til pláss – eins og sumir hafa þurft að gera með eldri búnað.

Z8 Fury G6i er búin allt að fjórum NVIDIA RTX PRO 6000 Blackwell Max‑Q skjákortum og einhverjum öflugustu örgjörvum fáanlegum á markaðnum, með allt að 16 minnisslottum og 10 PCIe rásum fyrir geymslu og stækkun. Þetta er ekki leikjatölva – heldur alvöru verkfæri fyrir gervigreind, hermun, 3D‑vinnslu og stórfelldar reikniaðgerðir.

60% endurunnið plast og 20% endurunnið stál

„Þrátt fyrir gríðarleg afköst leggur HP ríka áherslu á sjálfbærni í hönnun Z8 Fury G6i. Vinnustöðin inniheldur allt að 60% endurunnið plast, 20% endurunnið stál, og umbúðir eru unnar úr 100% endurunnum efnum. Aflgjafar vélarinnar eru 80 PLUS Platinum‑vottaðir, sem tryggir betri orkunýtni og minni orkutap,“ segir Trausti. Þá hefur vélin hlotið EPEAT® Gold með Climate+ vottun, sem er hæsta flokkun EPEAT og tekur meðal annars tillit til kolefnisspors, efnisvals og líftímastjórnunar. „Með uppbyggingu sem auðveldar uppfærslur og lengir líftíma búnaðarins er markmiðið skýrt: að draga úr umhverfisáhrifum með því að uppfæra í stað þess að skipta út allri vinnustöðinni,“ segir Trausti.

Hægt að samnýta með mörgum notendum

Vélin sé sérstaklega hönnuð til að standast tímans tönn – með uppbyggingu sem geri notendum kleift að uppfæra og stækka búnaðinn eftir þörfum, í stað þess að þurfa að skipta um alla vinnustöðina. „Flest fyrirtæki munu líklega setja hana upp hjá sér og nýta aflið fyrir marga notendur í gegnum fjartengingar, til dæmis með lausnum á borð við HP Anywhere, þar sem afkastagetan er nýtt miðlægt og skilvirkt.“

Búist er við að vélin komi á markað á vormánuðum.

Skoða upplýsingar um HP Z8 Fury G6i.

Deila frétt

Nýjustu fréttir