Tæknirisinn HP hefur enn og aftur tryggt sér sæti í efsta gæðaflokki þegar kemur að umhverfismálum og sjálfbærni. Í nýrri skýrslu greiningarfyrirtækisins Omdia, 2026 Global Sustainable Ecosystems Leadership Matrix, er HP útnefnt sem „Meistari“ (e. Champion) í sjálfbærni. Þetta er þriðja árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Skýrslan leggur mat á hvernig 15 af stærstu tæknifyrirtækjum heims innleiða sjálfbærni í eigin starfsemi og hvernig þeim tekst meðal annars að skapa jákvæð áhrif í gegnum starfsemi sína. HP sýndi sterkustu heildarframmistöðuna og er eitt af aðeins fjórum fyrirtækjum sem náðu meistarastöðu að þessu sinni.
Omdia hrósar HP fyrir viðvarandi skuldbindingu í umhverfismálum þrátt fyrir krefjandi efnahagsástand á heimsvísu. Árangurinn er sagður hvatning fyrir HP Amplify Impact, verkefni sem gengur út á samfélagsábyrgð og sjálfbærni.
Í greiningu Omdia er HP hrósað sérstaklega fyrir viðvarandi skuldbindingu og vaxandi kraft á tímum þar sem pólitískur og efnahagslegur mótvindur hefur orðið til þess að sum önnur fyrirtæki hafa dregið hægt og hljótt úr áherslum sínum á loftslagsmál.
„Það eru frábærar fréttir að HP hafi enn og aftur verið útnefnt leiðandi fyrirtæki í sjálfbærni á heimsvísu. Þessi árangur sýnir að það er hægt að sameina fremstu tækni og ábyrga umgengni við umhverfið – og það er nákvæmlega það sem við hjá OK viljum standa fyrir,“ segir Gísli Þorsteinsson forstöðumaður notandalausna hjá OK.
„Sem samstarfsaðili HP til margra ára erum við stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar tæknilausnir sem ekki bara hámarka afköst og öryggi, heldur lágmarka líka kolefnissporið. Græna vegferðin er ekki framtíðarmál, hún er handan við hornið og hún gerist í gegnum meðvituð val á búnaði og líftíma.“




