26.08.2026

Gervigreind sem greinir og lagar tölvubilanir áður en þær gerast

Með nýrri gerivgreindarlausn er hægt að fylgjast með heilsu tölvubúnaðar í rauntíma. Hún getur getur meðal annars séð fyrir og greint yfirvofandi vélbúnaðar- og kerfisbilanir áður en þær valda truflun á vinnudegi notenda. Lausnin er þegar komin í notkun hérlendis.
Workforce Experience Platform (WXP) hugbúnaðarlausn frá tæknirisanum HP getur greint milljónir gagnapunkta úr rekstri tölvunnar – allt frá stöðu drifa, vinnsluminni og rafhlöðuheilsu yfir í uppfærslur og aðrar algengar villur. WXP getur látið tæknideildir, sem nota lausnina, vita af vandamálum eða jafnvel leyst úr þeim sjálfkrafa. Lausnin veitir upplýsingatæknideildum ennfremur yfirsýn yfir allt tölvu- og prentumhverfi fyrirtækisins, óháð því hvar starfsfólk er staðsett.

Við erum að færast úr viðbragðsþjónustu yfir í forvarnir

Trausti Eiríksson, vörustjóri PC hjá tæknifyrirtækinu OK, segir þessa tækni marka vatnaskil fyrir fyrirtæki og tæknideildir þeirra. „Uppsafnaður tími sem fer í að leysa úr tölvuvandamálum hjá starfsfólki er ótrúlega dýr fyrir fyrirtæki,“ segir Trausti Eiríksson, vörustjóri PC hjá OK.

„Með WXP og innbyggðri gervigreind erum við að færast úr því að slökkva elda yfir í að greina vandann áður en hann veldur vanda hjá notanda. Lausnin greinir til dæmis ef harður diskur er við það að bila eða að rafhlaða er að gefa sig nokkrum vikum áður en vélin stoppar loksins. Það þýðir að tæknideildin getur brugðist við, pantað varahlut eða skipt um vél áður en notandinn verður fyrir nokkurri röskun á sínum vinnudegi.“

Trausti bendir jafnframt á að þetta auki ekki aðeins skilvirkni UT-deilda heldur bæti það upplifun starfsfólks til muna:
„Ekkert er eins pirrandi fyrir starfsmann og að tölvan frjósi í miðri mikilvægri kynningu eða á lokametrum verkefnis. WXP tryggir að tölvubúnaðurinn vinnur með notandanum en ekki á móti honum.“

Trausti segir að WXP sé komin notkun hjá viðskiptavinum OK og hafi gefið góða raun. „Með WXP fá fyrirtæki í raun gervigreindar-aðstoðarmann sem tryggir að stafrænt vinnusvæði starfsfólks sé ávallt í lagi.“

Deila frétt

Nýjustu fréttir