OK hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki 2026 hjá VR og er stolt af því að vera meðal þeirra fyrirtækja sem skara fram úr að mati starfsfólks.
Í könnuninni leggur starfsfólk mat á lykilþætti í vinnuumhverfinu, þar á meðal stjórnun, starfsanda, vinnuaðstæður, jafnrétti og sveigjanleika. Viðurkenningin Fyrirmyndarfyrirtæki er veitt þeim 15 fyrirtækjum sem skora hæst í sínum stærðarflokki í könnun VR um Fyrirtæki ársins.
Við leggjum metnað í að skapa vinnustað þar sem fólki líður vel og fær tækifæri til að þróast í starfi.
Við viljum þakka starfsfólki okkar kærlega fyrir traustið, samstarfið og þann metnað sem það sýnir á hverjum degi.




