Ekki láta vélbúnaðinn hamla gervigreindinni – HP Z-vinnustöðvar knýja framtíðina
Á veffundi með Hans Petter Espelid, Area Category Manager hjá HP Nordic, þann 13. maí var farið yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt gervigreind í daglegri vinnu og hvaða kröfur það gerir til vélbúnaðar. Þar var sérstaklega fjallað um HP Z-vinnustöðvar sem eru hannaðar fyrir krefjandi verkefni á sviði gagnafræði, verkfræði, hönnunar og AI-vinnslu.
Af hverju skiptir vélbúnaðurinn máli í AI-verkefnum?
Það er auðvelt að hugsa um gervigreind sem eitthvað sem gerist eingöngu í skýinu. Í raun skiptir miklu máli að hafa næga vinnslugetu þar sem gögnin og verkefnin eru unnin.
- HP Z-vinnustöðvar fyrir krefjandi verkefni:
Með öflugum Intel® Xeon® örgjörvum og NVIDIA RTX™ 6000 Ada skjákortum eru HP Z-vinnustöðvarnar hannaðar til að takast á við stór gagnasett, þjálfun AI-líkana og önnur verkefni sem krefjast mikillar reiknigetu. - Local AI og aukið öryggi:
Með því að keyra AI-verkefni staðbundið á vinnustöðinni er hægt að halda betur utan um viðkvæm gögn og draga úr þörf á að senda upplýsingar í ytri skýjaþjónustur. - HP AI Studio:
Á fundinum var einnig farið yfir HP AI Studio sem auðveldar teymum að vinna með AI-líkön í samræmdu vinnuflæði, hvort sem unnið er á staðbundnum vinnustöðvum eða í skýinu.
Tækni sem styður við daglega vinnu
- AI-ready vélbúnaður:
Nýjustu HP vélarnar eru búnar sérhæfðum NPU-einingum (Neural Processing Units) sem sinna AI-tengdum verkefnum og styðja við betri afköst í daglegri notkun. - Stöðug afköst undir álagi:
Kælikerfi HP Z-línunnar er hannað til að halda stöðugum afköstum í krefjandi vinnslu án óþarfa hávaða eða hitamyndunar. - HP Wolf Security:
Innbyggðar öryggislausnir hjálpa til við að vernda tækin og greina mögulegar ógnir á fleiri stigum.

Viltu vita hvaða HP Z-vinnustöð hentar best? Sérfræðingar OK hjálpa þér að finna lausn sem passar við verkefnin þín og vinnuumhverfi.




