Tæknidagur OK á Suðurlandi var haldinn í Tryggvaskála á Selfossi fimmtudaginn 12. nóvember og var vel sóttur. Um 50 gestir frá fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi komu til að hlusta á stutt erindi, hitta sérfræðinga OK og spjalla saman yfir mat og drykk.
Viðburðurinn bar yfirskriftina „OK á Suðurlandi – Tæknidagurinn 2026“ og undirtitilinn „Tækni, tengsl og góður matur“. Hugmyndin var einföld. Við vildum færa umræðu um tæknimál nær fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu. Gestir fengu hagnýta innsýn og gátu rætt málin beint við sérfræðingana okkar. Gunnar Zoëga, forstjóri OK, var fundarstjóri.
Fjögur stutt erindi
Sérfræðingar okkar héldu fjögur stutt erindi um mál sem eru ofarlega á baugi hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum.
Trausti Eiríksson, vörustjóri PC, fjallaði um nýja kynslóð fartölva með gervigreind. Hann fór yfir muninn á staðbundinni gervigreindarvinnslu og skýjalausnum og hvað gott er að hafa í huga við næstu tölvuendurnýjun.
Halldór Áskell Stefánsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þjónustu, tók gervigreindina áfram og ræddi Microsoft 365. Hann lagði áherslu á góðan undirbúning áður en gervigreindarlausnir eru teknar í notkun, öryggisáskoranir og reglulegt eftirlit með umhverfinu.
Gunnar Ingi Björnsson, forstöðumaður innviðasölu, spurði hvort netbúnaðurinn sé mikilvægasti búnaðurinn. Ingólfur Andri Ágústsson, sérfræðingur hjá OK, tók hluta erindisins með honum. Þeir sýndu hvernig netið hefur þróast úr því að vera tæknilegur bakgrunnur í að verða grunnur að öruggum og samfelldum rekstri.
Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna, fór yfir möguleikana í hljóði og mynd, allt frá fjarfundum og fundarherbergjum til stærri rýma og sérsniðinna lausna.
Erindin áttu það sameiginlegt að ný tækni opnar ýmsa möguleika en nýtist best þegar grunnurinn er í lagi.
Matur, drykkur og spjall
Að dagskrá lokinni tók við matur, drykkur og spjall. Gestir og starfsfólk okkar ræddu áfram um efni erindanna og það sem fólk er að fást við í daglegum rekstri.
Takk öll sem mættuð fyrir komuna og góðar samræður!
Myndir frá deginum má sjá hér að neðan.





