13.11.2026

Truflun á tölvupósti vegna alþjóðlegrar bilunar hjá Microsoft

Vegna alþjóðlegrar bilunar hjá Microsoft eru truflanir á tölvupósti hjá okkur. Það þýðir að tölvupóstur til okkar, þar á meðal til sölu og þjónustuborðs, og nýjar beiðnir sem sendar eru með tölvupósti gætu borist seint eða alls ekki. Það sama gildir um svör frá okkur.

Bilunin hefur áhrif á fyrirtæki um allan heim og ekki er enn vitað hvenær þjónustan kemst í eðlilegt horf. Hægt er að fylgjast með stöðunni á stöðusíðu Microsoft.

Á meðan bendum við á eftirfarandi leiðir:

  • Þjónustuborð (bilanir og þjónustubeiðnir): 570 1000, opið kl. 8–17
  • Neyðartilvik utan opnunartíma: 570 1070
  • Sala og tilboð: 570 1040

Ef þú hefur sent okkur tölvupóst frá kl. 20:00 fimmtudaginn 12. nóvember og ekki fengið staðfestingu, biðjum við þig að hafa samband símleiðis svo ekkert týnist.

Ekki er þörf á að breyta lykilorðum eða setja upp forrit aftur, því vandinn liggur hjá Microsoft.

Við uppfærum þessa síðu um leið og staðan breytist.

Deila frétt

Nýjustu fréttir