05.11.2026

Er „nýtt“ alltaf best í tækni?

Í áratugi höfum við verið „forrituð“ til að halda að eina rétta leiðin til að halda vinnustaðnum skilvirkum sé að kaupa glæný tæki á 3–4 ára fresti. En tækniheimurinn er að breytast – hratt.

Stærstu tölvuframleiðendur heims hafa tekið sjálfbærni opnum örmum. Í stað þess að einblína eingöngu á ný tæki leggja þeir nú ríka áherslu á að gefa tæknibúnaði framhaldslíf með sölu á vottuðum endurnýjuðum vélum (e. Certified Refurbished).

Um leið hafa fyrirtæki og stofnanir í vaxandi mæli valið endurnýjaðar fartölvur sem aðal vinnutæki starfsfólks og greiningaraðilar spá áframhaldandi vexti út áratuginn.

Vöxturinn í tölum

Hvert stefnir markaðurinn til 2030?

MarkNtel Advisors mat heimsmarkaðinn fyrir endurnýjaðar tölvur á um 8,3 milljarða Bandaríkjadala árið 2024. Fyrirtækið spáir að hann nái um 14,3 milljörðum dala árið 2030, sem jafngildir um 9,6% árlegum vexti. Aðrir greiningaraðilar eru varfærnari: Global Market Insights spáir um 6% árlegum vexti og Mordor Intelligence nær 10%. Allir eru þó sammála um hvert stefnir: markaðurinn mun vaxa verulega fram til 2030.

Af hverju velja fyrirtæki nú endurnýtt?

  1. Sjálfbærnimarkmið. Stærstur hluti kolefnisspors tölvu verður til við framleiðsluna og lengri líftími raftækja dregur verulega úr umhverfisáhrifum þeirra. Mordor Intelligence nefnir sjálfbærnistefnu fyrirtækja (ESG) sem einn helsta drifkraft markaðarins.
  2. Opinber innkaup. Græn innkaup í Evrópu eru farin að gera ráð fyrir endurnýjuðum búnaði. Á Ítalíu þarf nú a.m.k. 10% tölvubúnaðar í opinberum innkaupum að vera endurnýjaður.
  3. Gæðin eru til staðar. Stór hluti endurnýjaðra tölva kemur úr tölvuflota fyrirtækja; sem eru vandaðar fyrirtækjatölvur sem eiga enn nokkur ár eftir.
  4. Hærra verð á nýjum tölvum. Ástæðan er aðallega skortur á minniskubbum, sem fara í gagnaver fyrir gervigreind, að mati IDC.

HP dregur vagninn

HP er tallinn stærsti aðilinn þegar kemur að endurnýttum tölvum að mati Global Market Insights. HP er með um 16% hlutdeild. Á eftir koma Dell og Apple (um 13% hvor). Forskotið er enn meira í Evrópu en samkvæmt CONTEXT var HP með um helming evrópska markaðarins á fyrsta ársfjórðungi 2026.

Deila frétt

Nýjustu fréttir