Hver kannst ekki við að tónerinn/prenthylkið séu búið þegar prenta þarf út reikning eða samning í hvelli. Einhver fer að leita í skápnum, finnur ekki réttan tóner og þarf að panta nýjan. Á meðan bíður viðskiptavinurinn.
Þetta virðist kannski smámál, en það kostar sitt. Tíminn sem fer í að leita og panta og birgðirnar sem safnast upp í skápum – allt safnast þetta saman. Fæst fyrirtæki gera sér grein fyrir hvað prentunin kostar þau í raun í fjármunum og tíma.
Svona virkar Prentvakt OK
Prentvakt OK fylgist sjálfkrafa með prenturunum viðskiptavina.
- Prentvaktin fylgist með stöðunni á öllum tengdum prenturum.
- Þegar tónerinn fer að minnka fer ný sending í gang, áður en nokkur á vinnustaðnum tekur eftir því.
- Við sendum nýjan tóner og hann er kominn til ykkar áður en sá gamli klárast.
Enginn þarf að muna eftir að panta og óþarfi að liggja með hyllki á lager. Starfsfólkið getur einbeitt sér að sínum verkefnum án þess að velta fyrir sér stöðunni á prentaranum.
Bjóðum hylki í alla prentara
Fá fyrirtæki eiga bara eina tegund af prenturum. Prentaraflotinn verður yfirleitt til með árunum og stundum þarf að skipta við marga birgja.
Prentvakt OK virkar óháð tegund. Við bjóðum rekstrarvörur fyrir prentara frá HP, Lexmark, Canon, Epson, Brother, Xerox, Konica Minolta, Ricoh og Kyocera. Þið haldið prenturunum sem þið eigið og fáið allt frá einum aðila.
Hver er ávinningurinn?
- Engan kostnaður við uppsetningu. Uppsetningin er ókeypis.
- Enginn sendingarkostnaður. Við tökum ekkert fyrir sendingar.
- Prentarinn er með tóner. Nýtt hylki (duft- eða blekhylki) er komið áður en það gamla klárast.
- Engan óþarfa lager. Tónerinn kemur þegar hans er þörf. Ekkert gleymist inni í skáp.
- Minni sóun. Rekstrarvörurnar nýtast betur og sendingum fækkar.
- Einn þjónustuaðili. Sama aðilann sér um vöktun á öllum prenturum óháð tegund.
- Meiri tíma fyrir það sem skiptir máli. Enginn þarf lengur að eltast við að panta hylki.
Áður og eftir
| Áður | Með Prentvakt OK |
| Tónerinn klárast á versta tíma | Nýr tóner er kominn áður en hinn klárast |
| Tóner inni í skáp sem enginn veit af | Enginn lager |
| Prentarinn stoppar þegar tónerinn klárast | Prentarinn er stöðugt í notkun |
| Starfsfólk eltist við að panta hylki | Starfsfólk sinnir sínu starfi |
| Margar tegundir og margir birgjar | Einn þjónustuaðili |
| Flestir þurfa að borga fyrir sendingu á hylkjum | Enginn sendingakostnaður |
Fyrsta skrefið
Við byrjum á því að fara yfir prentarana sem þið eigið í dag og sýnum ykkur hvernig Prentvakt OK getur einfaldað málin bæði þegar kemur að tímasparnaði og kostnaði. Það skiptir engu máli hvort prentararnir eru tveir eða hundrað. Uppsetningin er ókeypis og þið greiðið engan sendingarkostnað fyrir hylkin.
Hafið samband við ráðgjafa OK og kynnið ykkur Prentvaktina.

HP OfficeJet Pro 8720 fjölnota prentari með HP Instant Ink upphafspakka.




