OK er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026
OK hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 frá Viðskiptablaðinu og Keldunni.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, jákvæða afkomu og traustan rekstur. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, tekna, eigna og eiginfjárhlutfalls fyrirtækja.
Við erum stolt af því að vera í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri og þakklát fyrir þessa viðurkenningu.




