25.06.2026

Treysta samstarfsfólki betur ef kveikt er á myndavélinni

Á að skylda fólk til að hafa kveikt á myndavélinni sinni á fjarfundum? Svo virðist sem að slíkt skipti máli í samskiptum fólks á fjarfundum, að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknar danska tæknifyrirtækisins Jabra, sem er leiðandi á heimsvísu í hönnun og framleiðslu á hljóð- og myndfundalausnum, og London School of Economics (LSE).

Niðurstöður sýna að ef fólk hefur kveikt á myndavélinni eykur það traust og sýnir aukna fagmennsku, að mati 64% aðspurðra. Það segist treysta samstarfsfólki sínu mun betur ef það sé einnig í mynd.

Samkvæmt rannsókn Jabra og London School of Economics (LSE) eykst framlag starfsmanns um heil 47% ef hann notast við hágæða hljóð- og myndbúnað. Þá telja 55% starfsmanna að notkun myndavéla hafi bein áhrif á hvernig faglega ímynd þeirra er metin; þeir sem sjást á skjánum eru dæmdir áhugasamari og hæfari.

„Þrátt fyrir þessi skýru niðurstöður er tækniástand á vinnustöðum víða ábótavant. Skýrslan leiðir í ljós að aðeins 15% starfsmanna telja að fundarherbergi á vinnustað þeirra séu búin fullnægjandi tækni fyrir blandaða fundi. Þá segja vel innan við helmingur starfsmanna (um 40%) að þeir hafi fengið viðeigandi búnað eða leiðbeiningar frá vinnuveitanda til að sinna fjarvinnu á skilvirkan hátt. Fyrirtæki standa því frammi fyrir skýru kalli um fjárfestingu í fundartækni til að brúa þetta bil,“ segir í skýrslu Jabra og LSE.

Deila frétt

Nýjustu fréttir