13.03.2026

Snjöllustu fyrirtækin eru að undirbúa sig – ertu með?

Krefjandi tímar eru framundan á tölvumarkaði. Verð eru að hækka, framboð af ákveðnum íhlutum er að minnka mikið og það er mikilvægt að vera undirbúinn og hugsa í lausnum. Trausti Eiríksson, vörustjóri notendalausna, er hreinskilinn um þróunina á markaðnum sem mun leiða til þess að fyrirtæki og stofnanir þurfa að hugsa út fyrir kassann. 

Gervigreindarrisar eru að hreinsa upp markaðinn 

 „Gervigreindarrisar eins og Microsoft, Google, Meta, OpenAI og Amazon eru að taka ótrúlega stóran hluta af íhlutum til sín,“ segir Trausti. „Þetta leiðir til skorts fyrir þá sem framleiða tölvur, símar, bíla og önnur tæki sem þurfa á vinnsluminni að halda. Þetta ástand gæti varað í 12-24 mánuði, jafnvel lengur – þetta er nýja veruleikinn.” 

Áhrifin eru þegar farin að sjást. Framleiðsla á íhlutum og minniseiningum er í uppnámi og afhendingartími er að lengjast. „Við vitum að þróunin hefur ekki komið fram af fullum þunga enn,“ segir Trausti. „En það mun gerast á næstu vikum og mánuðum.” 

Tækifæri til að hugsa hlutina upp á nýtt 

Þrátt fyrir að markaðurinn gæti tekið breytingum er það alltaf tækifæri til að hugsa hlutina á annan hátt. Trausti bendir á að búnaður sé til á lager í dag á sambærilegum verðum og áður en að það muni breytast. „Þetta er rétti tíminn til að endurnýja, áður en þróunin á markaðnum bítur í alvöru,“ segir hann. „Við vitum að margir eru með fjárhagsáætlanir og geta ekki bara keypt allt nýtt á einni nóttu. Þess vegna höfum við útbúið nokkrar leiðir til að veita viðskiptavinum okkar sveigjanleika og nýjar lausnir.” 

Að tryggja það sem þú ert þegar með 

Fyrsta skrefið fyrir þá sem kjósa að bíða með endurnýjun er að tryggja að núverandi búnaður standi sig. Hér kemur framlengd ábyrgð inn í myndina. „Ef þú ert að fara að fresta endurnýjun, þá þarftu að vera viss um að ef eitthvað komi uppá þá sértu engu að síður ekki að lenda í óvæntum kostnaði,“ segir Trausti. „Með framlengdri ábyrgð tryggjum við áframhaldandi rekstraröryggi, lækum heildarkostnað til skemmri tíma og gefum þér tímabundna lausn á meðan markaðurinn jafnar sig. Þetta er ekki endilega til langtíma – en það er snjall leið til að kaupa sér tíma. 

Fjármögnun, endurnýttur búnaður og fleiri valkostir 

Fyrir þá sem eru tilbúnir að uppfæra en þurfa sveigjanleika í greiðslum er HP Finance ein besta lausnin sem í boði er. „Þetta er ein hagstæðasta fjármögnunarleiðin á upplýsingatæknibúnaði sem boðist hefur hér á landi,“ segir Trausti. „Þú getur dreift greiðslum á þann hátt sem hentar fjárhagsáætluninni og haldið sjóðstreymi í lagi á óvissum tímum. Þetta breytir miklu.” Svo er HP Refurbished – lausnin sem Trausti segir að mörg fyrirtæki séu að uppgötva. „Þetta er búnaður sem vottaður þjónustuaðili hefur yfirfarið, þvegið, prófað og lagfært samkvæmt sömu stöðlum og gilda um nýjar vörur. Skipt er út slitnum hlutum með upprunalegum HP íhlutum og í sumum tilvikum er tækið jafnvel endursprautað í upprunalegum lit.“ Hann bætir við að lausnin sé ekki eingöngu hagkvæm, hún sé líka í anda sjálfbærni. „Þetta styður sjálfbærnimarkmið um minnkað kolefnisspor og við vitum að þessi þróun er nú þegar hafin í öðrum Norðurlöndum og er að koma sterkt inn sem valkostur þessa dagana. Þetta er ekki framtíðin – þetta er að gerast núna.” 

Sjáðu nákvæmlega hvað þú þarft 

„Fyrirtæki endurnýja búnað stundum of oft, eða of sjaldan – vegna þess að það hefur ekki heildarmyndina. Oft eru starfsmenn með of öflugan og dýran búnað, eða ekki með nægilega öflugan búnað og þá er til frábært tól sem aðstoðar við þá greiningu að finna hvað hentar hverjum starfsmanni.” 

Lausnin heitir HP Workforce Experience, eða WXP, og hún hefur vakið mikla athygli. „Til að einfalda þetta þá gefur WXP þér nákvæma mynd af tölvuumhverfi fyrirtækisins. Þú sérð hvaða tæki eru að verða úrelt, hvaða notendur þurfa uppfærslu strax og hverjir geta beðið og þannig fjárfestir þú nákvæmlega þar sem þörfin er mest og eyðir ekki í það sem mætti bíða. Auk þess er hægt að uppfæra hugbúnað og stýrikerfia véla frá einum stað, óháð framleiðanda.” Tólið hefur komið eins og stormsveipur á heimsmarkaðinn síðustu mánuðina og Trausti er sannfærður um að það muni gjörbreyta þeim hætti sem fyrirtæki taka ákvarðanir um búnað. 

Skipulagning er lykillinn 

Þegar Trausti er spurður hvað hann vilji að fólk taki með sér úr þessum tímum, svarar hann: „Skipulagning. Þeir sem eiga reglulegt samtal við sína birgja, þekkja sínar þarfir og nýta þær lausnir sem eru í boði eru þau sem munu komast best í gegnum þetta. Hlutirnir geta breyst hratt. Það getur verið dýrt að bíða.” 

Trausti Eiríksson er vörustjóri notendalausna 

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir