Þrátt fyrir að skammt sé liðið á árið eru þegar góðar líkur á að nýja Evolve3‑heyrnartólalínan frá Jabra verði meðal þeirra mest spennandi sem koma á markað árið 2026. Tæknimiðlar á borð við CNET, Headset Advisor, TechRadar og Notebookcheck hafa þegar birt
fyrstu umsagnir – og tónninn er skýr: þetta eru heyrnartól sem gætu orðið leikbreytir á vinnumarkaðnum.
CNET bendir á að Jabra hafi tekist að ná fram óvenju góðu jafnvægi milli skýrleika í tali, hágæða ANC‑hljóðeinangrunarog þæginda – og það allt án hefðbundins boom‑arms, sem áður þótti ómissandi fyrir vinnuheyranrtól. Notebookcheck.net tekur í sama streng og segir Evolve3 vera „fullkomin fyrir nútíma vinnuumhverfi“ þar sem fjarfundir, opið rými og hreyfanleiki eru alls ráðandi. Headset Advisor lýsir Evolve3‑seríunni sem „næstu kynslóð Bluetooth‑tækni“ sem byggir á vinsællu Evolve2‑línunni, en bætir verulega við hvað varðar AI‑vinnslu,
hljóðgreiningu og heildarhönnun. TechRadar hrósar sérstaklega hönnuninni og segir Evolve3 vera „heyrnartól sem sameina vinnuhæfni og lúxus‑hljóð í einum pakka“, og gætu því höfðað jafnt til fyrirtækja sem neytenda.

„Við sáum strax í forpöntunum að þetta yrði vinsæl vara – en þessi áhugi hefur farið langt fram úr björtustu vonum,“ segir Kristinn
Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK, sem er dreifingaraðili Jabra á Íslandi. „Eftirspurnin hefur einfaldlega slegið öll met
hjá okkur. Við höfum vart undan,“ bætir hann við. „ Þá er samhljómur í umsögnum tæknimiðla sem gerir það að verkum að margir í tæknigeiranum telja að Evolve3 hafi burði til að verða meðal heyrnartóla ársins 2026.” Samkvæmt Kristni eru það einkum fjórir þættir sem skýra
vinsældirnar:
- Ný ClearVoice AI‑tækni sem tryggir skýrt tal, jafnvel í opnum vinnurýmum.
- Öflug ANC‑dempun sem dregur úr truflunum og eykur einbeitingu.
- Rafhlöðuending allt að 120 klukkustundir, sem er tvöfalt meiri en í mörgum sambærilegum heyrnartólum á markaði.
- Hönnun og þægindi sem gera langa fundadaga mun léttari.
„Vinnurými á Íslandi hafa á síðustu árum þróast hratt í áttað opnum rýmum, sameiginlegum vinnusvæðum, rafrænum samskiptum og fjarfundum. Þar reynast Evolve3 koma einstaklega vel út,“ segir Kristinn.
- ANC‑tæknin sé sérstaklega sterk í almennu vinnurými.
- Bluetooth‑samband er mjög stöðugt, sem hentar þegar notendur eru á hreyfingu.
- Talgæðin eru stöðug og skýr í Teams og símtölum.
„Starfsfólk sem prófar þau vill ekki nota nein önnur,“ segir Kristinn. „Það segir í raun allt sem segja þarf.“



