Isavia hefur framlengt samning sinn við OK um heildarkaup á HP tölvubúnaði, en samningur þess efnis var fyrst undirritaður árið 2023 að loknu útboði. Samningurinn nær til sérkjara á fartölvum, borðtölvum, tölvuskjám og aukahlutum frá HP.
Gunnar Zoëga, forstjóri OK, segir að endurnýjun samningsins sé skýr staðfesting á því að fyrirtækið hafi náð að uppfylla kröfur Isavia um gæði búnaðar, áreiðanlega þjónustu og afhendingaröryggi. „Við erum stolt af því trausti sem Isavia sýnir okkur með áframhaldandi samstarfi. OK hefur lagt mikla áherslu á að veita skjót og fagleg viðbrögð, stöðugt framboð og öflugan búnað sem stenst kröfur í krefjandi rekstri,“ segir Gunnar.
Hann segir að HP sé lykilþáttur í því að tryggja bæði tæknilega frammistöðu og sjálfbærni. „HP hefur verið leiðandi í umhverfisvænni framleiðslu á heimsvísu. Fyrirtækið notar nú yfir 95% endurvinnanlega umbúðalausnir, hefur endurunnið tugmilljónir kílóa af plasti í nýjar vörur og stefnir að fullu kolefnishlutleysi í allri virðiskeðju fyrir árið 2040. Með því að vinna með HP getum við boðið viðskiptavinum okkar búnað sem er bæði öflugur, orkuvænn og framleiddur með ábyrgum hætti.“
„Fyrir okkur hjá Isavia skiptir miklu máli að hafa samstarfsaðila sem getur tryggt stöðugt framboð á búnaði sem stenst bæði rekstrarkröfur og sjálfbærnimarkmið,“ segir Bjarni Sigurðsson hjá Isavia. „OK hefur sýnt fram á mjög sterka þjónustu í gegnum tíðina — hvort sem það er hröð og áreiðanleg afhending eða fagleg vinnubrögð í kringum sértæk verkefni. HP hefur jafnframt sýnt mikla forystu í umhverfisvænni framleiðslu og það vegur þungt í okkar ákvörðunum. Endurnýjun samningsins við OK tryggir okkur áframhaldandi aðgang að búnaði sem uppfyllir strangar kröfur um orkunýtingu, endurvinnanleg efni og langan líftíma búnaðar, en einnig þjónustu sem við getum treyst í krefjandi rekstri.“




