Tæplega þriðjungur tölva á Íslandi notar enn Windows 10, þó að Microsoft hafi hætt stuðningi við útgáfuna. Öryggisstjóri OK segir að slíkar tölvur séu berskjaldaðri fyrir árásum tölvuþrjóta.
Þann 14. október hætti Microsoft öryggisuppfærslum, tækniaðstoð og öðrum uppfærslum fyrir hið 10 ára gamla Windows 10 stýrikerfi. Af þeim sökum urðu tölvur með Windows 10 viðkvæmari fyrir öryggisógnum án reglulegra uppfærslna. Þá munu ákveðin forrit hætta að virka sem skyldi með tímanum af þeim sökum.
Um 30 veikleikar í Windows 10 voru tilkynntir á síðasta ári og tveir eftir að Microsoft hætti stuðningi við stýrikerfið. Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri tæknifyrirtækisins OK, segir að mikilvægt sé að þau fyrirtæki sem ekki hafa hætt notkun á Windows 10 skoði hvaða möguleikar séu í boði því öryggisveikleikar geti skert rekstrargetu þeirra til skemmri eða lengri tíma. „Flestar nýrri tölvur er hægt að uppfæra beint í Windows 11. Sú leið tryggir áframhaldandi öryggi og samhæfni. Í þeim tilfellum þar sem tæki styðja ekki uppfærslu í Windows 11 er nauðsynlegt að fara í útskipti á vélbúnaði.“
Arnar segir að þó að fríar uppfærslur séu í boði til október 2026, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, muni öryggisáhætta aukast hratt. „Nú þegar hafa tveir nýir veikleikar bæst við, eftir að almennum stuðningi var hætt. Það sem gerir stöðuna víðsjárverða er að nokkrir hugbúnaðarframleiðendur hafa tilkynnt að eftir apríl 2026 muni hugbúnaður þeirra hætta að styðja Windows 10. Tölvur með Windows 11 eru því öruggari, skilvirkari og tryggja aukin afköst – hvort sem þær eru notaðar í vinnu, skóla eða til skemmtunar.“
Nánari upplýsingar um lágmarksviðmið fyrir notkun á Windows 11.




