Lyklaborðið sem er líka tölva, HP EliteBoard G1a, er komin til landsins. Þessi græja var fyrst kynnt til sögunnar á tæknimessunni CES 2026 í Las Vegas í byrjun árs. EliteBoard G1a lyklaborð er ætlað að auka möguleika vinnustaða þegar kemur að samsetningu tölvuflota og fyrir starfsfólk sem er mikið á ferðinni.
HP EliteBoard G1a er með AMD örgjörva og býður upp á afköst sem eru sambærileg og venjuleg fartölva. Lyklaborðið vegur aðeins 750 gr þannig að það er auðvelt að taka með sér og það hefur Poly hljóðnema og hátalara innbyggða. Það tengist við skjá með einni snúru og veitir notendum hratt og auðvelt aðgang að tölvuviðmóti án þess að þurfa að hafa eina staðlaða fartölvu.
Eliteboard G1a er sérstaklega gagnlegt fyrir skrifstofur þar sem pláss er takmarkað, notendur sem tengja fartölvuna sína við skjá, en nýta sjaldnast skjáinn á tölvunni, fundaherbergi sem þarfnast tölvu á staðnum eða skrifstofur þar sem starfsmenn skipta reglulega um sæti.
„HP EliteBoard G1a er skýr vísbending um nýjan kafla í þróun vinnuumhverfisins. Með því að hafa AI-tölvu innbyggða í lyklaborði færir vinnuna á nýtt stig. Fyrirtæki leitast sífellt meira við að einfalda ferla, straumlínulaga vinnuumhverfi og gefa starfsfólki aukið frelsi. EliteBoard G1a er einmitt sú lausn sem rýfur hefðbundið skrifborðsfyrirkomulag og opnar dyr að raunverulegri sveigjanleika,“ segir Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður Notendalausna hjá OK.“
Lyklaborðið verður til sýnis á bás OK á UTMessunni í Hörpu, föstudaginn 6. febrúar. Reiknað er með að það komi í sölu hjá OK á vormánuðum.




