21.08.2025

Latibær fær kraft frá OK

Latibær (LazyTown) hefur valið tæknifyrirtækið OK til þess að annast hýsingu og rekstur á stafrænum eignum félagsins. OK mun einnig styðja við flutning gagna og annarra stafrænna eigna til Íslands frá Bretlandi, þar sem gögnin höfðu verið hýst áður.
LZT Holding fjárfestingafélag er í eigu Magnúsar Scheving og fjárfesta, sem keyptu Latabæ á síðasta ári.
„Mikil menningarverðmæti felast í efninu og því mikilvægt að koma þeim í örugga höfn. Stefnan er að nýta efnið í vegferð Latabæjar í að hlúa að heilsu og hreyfingu barna. Ég treysti OK fullkomnlega að halda utan um og varðveita þessi mikilvægu gögn og sögu Latabæjar,“ segir Magnús Scheving.
Latibær er eitt þekktasta vörumerki Íslands. Í yfir 30 ár hafa börn og for­eldr­ar í 170 lönd­um fylgst með Lata­bæ. Þætt­irn­ir hafa hlotið fjölda til­nefn­inga og meðal ann­ars unnið hin virtu BAFTA-sjón­varps­verðlaun.
„Við hjá OK erum stolt af því að njóta traust eigenda Latabæjar til að hýsa og varðveita þessa arfleið. Við munum áfram vinna að lausnum sem styðja við frekari gagnanýtingu og styrkja útbreiðslu Latabæjar á heimsvísu,“ segir Gunnar Zoëga, forstjóri OK.
Deila frétt