Þó tæknilausnir skipti miklu máli byrjar öryggi oft á einföldum hlutum eins og að þekkja vefveiðar, bregðast rétt við grunsamlegum skilaboðum og vita hvernig á að meðhöndla gögn og aðgangsupplýsingar í daglegu starfi.
Starfsfólk OK lauk nýverið öryggisvitundarþjálfuninni Vaknaðu sem hjálpar fyrirtækjum að auka öryggisvitund starfsfólks og draga úr áhættu í daglegum rekstri.
Flestar netárásir byrja á mannlegum mistökum. Þess vegna er mikilvægt að starfsfólk þekki helstu hættumerkin og skilji sitt hlutverk í að vernda gögn, kerfi og viðskiptavini.
Við hjá OK leggjum áherslu á að byrja á okkur sjálfum og erum stolt af því að vinna með fólki sem tekur öryggi alvarlega 💙
Hvað er Vaknaðu?
Vaknaðu er öryggisvitundarþjálfun frá OK sem hjálpar fyrirtækjum að fræða starfsfólk um helstu netógnir dagsins í dag.
Þjálfunin fer meðal annars yfir:
• Vefveiðar og svikaskilaboð
• Lykilorðaöryggi og aðgangsstýringar
• Meðhöndlun gagna og upplýsinga
• Daglegar venjur sem draga úr áhættu
Markmiðið er að gera starfsfólk meðvitaðra um netógnir og styrkja fyrstu varnarlínuna gegn árásum.
Viltu fræðast meira um Vaknaðu og öryggisvitundarþjálfun fyrir fyrirtæki?







