20.02.2026

OK valið Fortinet Partner of the Year 2025

OK valið Fortinet Partner of the Year 2025

 

OK hefur verið valið Fortinet Partner of the Year 2025 á Íslandi. Samhliða því hlaut Ingólfur A. Ágústsson, sérfræðingur hjá OK, viðurkenninguna Fortinet Champion of the Year 2025.

Viðurkenningarnar eru veittar þeim samstarfsaðilum og sérfræðingum sem hafa náð framúrskarandi árangri í sölu, ráðgjöf og innleiðingu lausna Fortinet á árinu.

Ingólfur hefur sérhæft sig í netöryggislausnum Fortinet og leitt verkefni fyrir íslensk fyrirtæki og opinbera aðila. Hann hefur jafnframt lagt áherslu á fræðslu og vottanir á sviðinu.

Að mati forsvarsmanna Fortinet endurspeglar valið á OK sem Partner of the Year árangur fyrirtækisins í uppbyggingu netöryggislausna og nánu samstarfi við Fortinet á íslenskum markaði.

,,Við erum að sjálfsögðu ánægð og stolt með þessa stóru viðurkenningu frá Fortinet. Þetta er mikill heiður og viðurkenning á fagmennsku og teymisvinnu á sviði netöryggis hjá OK,“ segir Andri Tryggvason, forstöðumaður netlausna hjá OK.

OK er samstarfsaðili Fortinet á Íslandi og veitir fyrirtækjum og opinberum aðilum netöryggislausnir og ráðgjöf.

Deila frétt

Nýjustu fréttir