OK fær góða einkunn í alþjóðlegri sjálfbærniúttekt HP (Amplify Impact Sustainability Self-Assessment Report) og er með talsvert betri árangur en sambærileg fyrirtæki sem tóku þátt. OK hlaut 57% í heildareinkunn en sambærilegir samstarfsaðilar HP voru með 42% í heildareinkunn.
„Einkunn OK undirstrikar hve sjálfbærni er orðin órjúfanlegur þáttur í rekstri OK. Úttektin náði yfir fjölbreytt svið, þar á meðal umhverfismál, mannauð, samfélagsábyrgð og hvernig sjálfbærni er samofin sölu og þjónustu. Niðurstöðurnar sýna skýrt að Opin kerfi hefur byggt upp traustan grunn í öllum þessum lykilþáttum,“ segir Gísli Þorsteinsson forstöðumaður Notendalausna OK.
Gísli leggur áherslu á að sjálfbærni sé ekki aukaverkefni hjá OK, heldur sé hún órjúfanlegur og mikilvægur hluti þeirra vinnubragða og hugsunar sem móta starfsemi fyrirtækisins. „ Að auki er sjálfbærni orðinn stór þáttur í samtölum við viðskiptavini, einkum þegar kemur að útboðum, innkaupastefnu, vali á lausnum og ráðgjöf. “
HP metur að OK hafi innleitt virk og raunhæf úrræði í umhverfismálum, þar á meðal í förgun og endurvinnslu búnaðar og orkunýtingu, sem og ábyrgari nálgun á líftíma tækja. Skýrslan staðfestir að fyrirtækið hefur sterkan grunn til efla sjálfbærni enn frekar með skýrum markmiðum og mælikvörðum.
Amplify Impact Sustainability Self-Assessment Report er alþjóðleg sjálfbærniúttekt HP þar sem samstarfsaðilar meta eigin frammistöðu í sjálfbærni út frá fjölmörgum viðmiðum og fá tækifæri til að bera sig saman við önnur fyrirtæki á markaðnum. Á hverju ári tekur fjöldi fyrirtækja, bæði stór og smá, þátt í úttektinni. Hún veitir innsýn í framvindu sjálfbærni hjá tæknifyrirtækjum og hvetur til framþróunar og aukinnar samkeppni á því sviði.




