OK fær góða einkunn í nýju alþjóðlegu sjálfbærnimati HP (HP Amplify Impact). OK náði 57% í heildarárangri, sem er umtalsvert yfir meðaltali sambærilegra samstarfsaðila HP. „Einkunnin staðfestir að sjálfbærni er orðin fastur og sýnilegur hluti af starfsemi fyrirtækisins,“ segir Gísli Þorsteinsson forstöðumaður Notendalausna OK.
Úttektin nær yfir umhverfismál, mannauð, samfélagsábyrgð og hvernig sjálfbærni er ofin inn í sölu og þjónustu. Niðurstöðurnar sýna að Opin kerfi er komið með traustan grunn í öllum þessum þáttum,“ segir Gísli.
„Sjálfbærni er ekki aukaverkefni hjá okkur. hún er orðin hluti af því hvernig við hugsum og vinnum. Við getum jafnframt sagt að sjálfbærni sé orðin virkur hluti af samtali við viðskiptavini, sérstaklega þegar kemur að útboðum, innkaupastefnu, val á lausnum og ráðgjöf.”
HP segir að OK búi yfir virkum og raunhæfum aðgerðum þegar kemur að umhverfisþáttum, meðal annars í förgun, endurvinnslu, orku- og kolefnisstjórnun og ábyrgari nálgun á líftíma tækja og búnaðar. Skýrslan bendir á að fyrirtækið hafi sterkan grunn til að byggja enn frekar á með skýrum markmiðum og mælikvörðum.
„HP Amplify Impact veitir OK vegvísi til áframhaldandi framfara og styður við framtíðarsýn um ábyrgan, framsýnan og sjálfbæran rekstur.”




