OK kaupir netöryggislausnir Cyren og stofnar Varist

OK hefur fest kaup á vírusvarnarhugbúnaði alþjóðlega netöryggisfyrirtækisins Cyren Ltd. (NASDAQ: CYRN) en félagið sótti nýverið um gjaldþrotaskipti í Ísrael. Kaupin eru gerð í gegnum nýtt félag, Varist ehf. Félagið verður í sameiginlegri eigu OK og fyrrum starfsmanna Cyren á Íslandi sem unnið hafa saman að viðskiptunum síðan öllum starfsmönnum Cyren á Íslandi var sagt upp störfum þann 1. febrúar sl. Hallgrímur Th. Björnsson verður framkvæmdastjóri nýs félags sem mun sérhæfa sig í netöryggislausnum og tengdri þjónustu.

Hugbúnaðarlausnirnar sem um ræðir eru nýttar af mörgum af helstu tæknifyrirtækjum heims, þ.m.t. Microsoft, Google og Zscaler. Lausnirnar eiga sér djúpar rætur á Íslandi, en yfir 30 ár eru síðan þær litu fyrst dagsins ljós, þá undir nafninu Lykla-Pétur. Commtouch, forveri Cyren, keypti svo starfsemina á Íslandi árið 2012 en rekstur og þróun lausnanna var áfram hér á landi. Samtals komu 40 starfsmenn að þeim rekstri, mestmegnis hérlendis og á Filippseyjum.

Hallgrímur Th. Björnsson, framkvæmdastjóri Varist

„Það er virkilega ánægjulegt að tekist hafi að bjarga verðmætum sem hafa verið byggð upp af starfsfólki á síðustu áratugum og um leið tryggja áframhaldandi starfsemi á Íslandi. Starfsfólkið er óaðskiljanlegur hluti af lausnunum og þekking þeirra og reynsla í netöryggismálum telur samtals yfir 250 ár. Með kaupunum fáum við tækifæri til að sækja fram og halda áfram að þróa netöryggislausnir sem eru í fremstu röð á heimsvísu. Ég vil sérstaklega þakka starfsfólki okkar fyrir að hafa staðið með okkur í þessari vegferð.“

Gunnar Zoega, forstjóri OK

„Netöryggismál hafa aldrei verið eins mikilvæg og þau eru í dag. Með stofnun Varist og kaupum á öryggislausnunum stígur OK stórt skref í átt að aukinni sérþekkingu á þessu sviði og leggur grunn að auknu vöruframboði og þjónustu til að mæta þörfum viðskiptavina.“

deildu fréttinni

Explore more about OK