OK verður á UTmessunni í Hörpu 6.–7. febrúar.
Á básnum kynnum við tæki og lausnir fyrir vinnuumhverfi fyrirtækja. Þar verða meðal annars til sýnis tölvur og skjáir frá HP, ásamt hljóðlausnum frá Jabra og HP Poly.
Við kynnum meðal annars HP EliteBoard G1a, nýjung sem vakti athygli á CES í byrjun árs – lyklaborð með innbyggðri tölvu sem sýnir vel hvert þróunin er að stefna þegar kemur að sveigjanlegum vinnustöðvum.
Við kynnum einnig Vissa MDR, netöryggisvöktun sem hjálpar fyrirtækjum að greina og bregðast við ógnum áður en þær hafa áhrif á rekstur.
Að auki verðum við með sjálfkeyrandi iðnaðarvélmenni á svæðinu, sem sýnir hvernig sjálfvirknivæðing og snjallar lausnir geta einfaldað vinnuferla.
Kíktu til okkar í kaffi á OK barnum og spjallaðu við fólkið okkar á básnum.




