17.02.2026

Jabra Evolve3 – 120 klst rafhlöðuending

Jabra hefur kynnt til leiks nýju Evolve3 heyrnartólin – næstu kynslóð af vinnuheyrnartólum sem sameina hágæða hljóð, einstaka hönnun og öfluga tækni fyrir nútíma vinnuumhverfi. OK mun bjóða Evolve3‑seríuna á næstu vikum og er þegar farið að taka við fyrirspurnum. Hægt er að forpanta Jabra Evolve3 á sala@ok.is

Nýju Evolve3 heyrnartólin eru hönnuð fyrir bæði fjarvinnu, skrifstofur og ferðalög, og byggja á vinsælu Evolve2‑línunni, sem hefur verið staðalbúnaður hjá mörgum fyrirtækjum. Stærsta breytingin er ný „boom‑laus hönnun“, þar sem hefðbundinn sveigjanlegur hljóðnemi hefur verið fjarlægður og í staðinn kemur svokallað „ClearVoice‑kerfi“ sem notar tauganetstækni (e. deep neural network – DNN) til að einangra rödd notandans frá umhverfishljóðum . Evolve3 er sérstaklega hannað fyrir hybrid‑vinnu, með áherslu á þægindi, hljóðeinangrun og skýra raddupptöku í opnum rýmum, heimaskrifstofum og á ferðinni.

Evolve3‑línan kemur til að byrja með í tveimur útgáfum, en fleiri útfærslur munu bætast við siðar á árinu.  Bæði Evolve3 75/85 verða fáanleg í tveimur litum, ljósum og dökkum.

  • Evolve3 75 – léttari, á eyru
  • Evolve3 85 – yfir‑eyru, með hámarks einangrun

Bæði módelin eru með 120 klukkustunda rafhlöðuendingu (tónlist), sem er stórt stökk frá fyrri kynslóðum og gerir þau sérstaklega hentug fyrir þá sem eru mikið á ferðinni eða vinna í löngum lotum.

  • Tónlistarafspilun: Allt að 120 klukkustundir (með ANC og busylight slökkt).
  • Tal­tími: Allt að 25 klukkustundir (með ANC og busylight slökkt).
  • Hraðhleðsla: 10 mínútna hleðsla gefur allt að 10 klukkustunda afspilun.
  • Þráðlaus hleðsla: ásamt USB‑C snúruhleðslu.
  • Aðrar eiginleikar: Bluetooth 5.4, skipta má um rafhlöður og AI‑studd raddstýring.

„Evolve3 er skref fram á við fyrir alla sem vilja öflug heyrnartól sem hljóma frábærlega og búa yfir flotti hönnun – en með áreiðanleika og tækni sem fyrirtæki treysta á,“ segir Kristinn Helgason vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK . „Við sjáum mikinn áhuga hjá viðskiptavinum sem vilja nútímalegri hönnun án þess að fórna hljóðgæðum eða hljóðnemaafköstum.“

Evolve3 fær lofsamlega dóma

Nokkrir helstu tæknimiðlar hafa þegar birt fyrstu dóma og umsagnir um Evolve3‑seríuna. Meðal þeirra eru TechRadar, The Verge, Laptop Mag, Tom’s Guide og Android Central.

Hljóðgæði og hljóðnemi

  • TechRadar hrósar ClearVoice‑kerfinu og segir að það skili „mun skýrari rödd“ en fyrri kynslóðir.
  • The Verge bendir á að DNN‑vinnslan sé „áberandi framför“ í hávaðasömum vinnurýmum.

Þægindi og hönnun

  • Laptop Mag segir Evolve3 „þægilegri og léttari en Evolve2“.
  • Android Central nefnir að boom‑laus hönnun geri heyrnartólin „mun nútímalegri og meira eins og premium‑neytendatól“.

Rafhlöðuending

  • Tom’s Guide kallar 120 klst. rafhlöðuendingu „eitt stærsta stökk sem Jabra hefur gert í mörg ár“.
  • Nokkrir miðlar nefna að þau „þurfi varla að hlaða þau yfir vikuna“.

Hybrid‑vinna

  • Miðlar eru sammála um að Evolve3 sé „hönnuð sérstaklega fyrir blandaða vinnu“ og skili betri frammistöðu í opnum rýmum en Evolve2.

Samanburður: Evolve3 og Evolve2

1. Hljóðnemi

  • Evolve2: Hefðbundinn boom‑armur
  • Evolve3: Boom‑laus hönnun + DNN ClearVoice ➡️ Skýrari rödd, minna suð, nútímalegri útlit

2. Rafhlöðuending

  • Evolve2: 24–37 klst. eftir módel
  • Evolve3: Allt að 120 klst. ➡️ Fjórföld rafhlöðuending í sumum tilfellum

3. Þægindi og hönnun

  • Evolve2: Þægileg, en þyngri
  • Evolve3: Léttari, mýkri púðar, situr betur á höfði ➡️ Hentar betur fyrir langa vinnudaga

4. Hljóðeinangrun

  • Evolve2: Góð
  • Evolve3: Endurbætt og stillanlegt ANC hljóðeinangrun og betri einangrun í opnum rýmum ➡️ Nýtist sérstaklega vel í opnum skrifstofum

5. Hybrid‑vinnuumhverfi

  • Evolve2: Sterk lausn
  • Evolve3: Hönnuð sérstaklega fyrir hybrid‑vinnu ➡️ Þau virka vel í mismunandi aðstæðum — skrifstofa, heimavinna, ferðalög.

OK, sem er dreifingaraðili Jabra á Íslandi, mun kynna verð og afhendingartíma á næstu vikum.

Deila frétt

Nýjustu fréttir