Það er ekki á hverjum degi sem við sjáum fartölvu sem nær að tvinna saman léttleika, glæsilega hönnun og vinnslugetu sem mætir kröfum framtíðarinnar. Það gerir HP EliteBook X G2i svo sannarlega. Þegar hún var kynnt á CES 2026 fékk hún viðurnefnið „featherweight champion“ hjá gagnrýnendum (ITPro). Hér eru helstu ástæður þess að þessi vél hefur hækkað ránna í getu fyrir tæknifólk og þá sem þurfa auka kraft í daglegum verkefnum:
Úr 90% endurunnu magnesíum
Það fyrsta sem fólk tekur eftir er þyngdin – eða hversu létt hún er. Vélin er aðeins 1,1 kg, sem þýðir að þú getur borið hana á milli funda eða í bakpoka allan daginn án þess að finna fyrir henni (ITPro). Hún kemur í þremur litum; silfurlituðum, dökkum og svokölluðum „Atmospheric Blue“ lit og er smíðuð úr 90% endurunnu magnesíum, sem sýnir að HP tekur sjálfbærni alvarlega (HP Newsroom).

Hún er svo hljóðlát að heyra má saumnál detta
X G2i státar af 14 tommu 3K OLED skjá með 120Hz endurnýjunartíðni. Litadýptin og birtustigið (allt að 500 nits) gera hana fullkomna fyrir hönnuði og þá sem vinna í krefjandi birtuskilyrðum (ITPro).
„Lyklaborðið er draumur fyrir þá sem skrifa mikið,“ segja sérfræðingar, sem gerir vinnuna þægilegri (TechRadar). Haptic snertifleturinn er sömuleiðis stór, mjúkur og veitir ur afskaplega góða svörun (ITPro). Þá er HP hrósað fyrir hljóðláta virkni lyklaborðsins sem hentar vel í opnum skrifstofurýmum (Laptop Mag).
Villdýr leynist undir húddinu
Undir húddinu leynist Intel Core Ultra X7 358H örgjörvi sem er sérstaklega hannaður til að takast á við gervigreindarverkefni dagsins í dag (AI workloads) án þess að blása úr úr nös (Windows Central).
- Vinnsluminni: Allt að 32GB RAM fyrir hnökralausa fjölvinnslu.
- Tengingar: Wi-Fi 7 og Bluetooth 6 tryggja hraðasta mögulega netið (HP Specifications).
- Rafhlaða: Þrátt fyrir léttleikann endist hún vel fram yfir hefðbundinn vinnudag (ITPro). Prófanir sýna að nýi Intel örgjörvinn bætir orkunýtingu til muna miðað við fyrri kynslóðir (CNET). Hún getur dugað frá 14-16 klst. (Digital Trends).

Öryggi og fjarvinna
Fyrir nútíma vinnustaðinn er vélin búin 5MP vefmyndavél með AI Presence Detection, sem bæði eykur öryggi og bætir hljóð og mynd í fjarfundum (HP Newsroom). Úrval tengja er einnig til fyrirmyndar, með þremur USB-C (þar af tveimur Thunderbolt 4), USB-A og HDMI, svo þú þarft sjaldnast að leita að millistykki (ITPro). Þessi samsetning tengimöguleika þykir ein sú besta í þessum þyngdarflokki (Digital Trends).
Að endingu: HP EliteBook X G2i er ekki bara falleg tölva; hún er verkfæri fyrir þá sem vilja það besta í hreyfanleika án þess að fórna afköstum. Hvort sem þú ert á ferðinni eða við skrifborðið þá er þetta vélin sem horfir til framtíðar.




