06.02.2026

Búnaður með minna kolefnisfótspor

Tæknirisinn HP stefnir á að auka enn frekar sjálfbærni í sinni framleiðslu á búnaði á árinu 2026, svo sem með notkun á endurunnum efnum, að því fram kom á kynningu hjá OK. Segir HP að fyrirtækið stefni á kolefnishlutleysi árið 2024.
Á kynningunni sýndi HP EliteBoard G1a, lyklaborð með innbyggðri tölvu, og EliteBook X G2, fyrstu fyrirtækja-fartölvuna á markaðnum með örgjörva sem styður 85 TOPS. Er EliteBook X G2 sögð tilvalin fyrir verkefni sem krefjast mikillar gervigreindarútreikninga, eins og myndgreiningu, rauntímatalgreiningu, eða flóknar gagnagreiningar.
“HP hefur opinberað  metnaðarfulla stefnu sína í sjálfbærni fyrir vinnuumhverfi framtíðarinnar. Þessi nálgun er sérstaklega mikilvæg þar sem fyrirtæki þurfa í auknum mæli að velja búnað sem minnkar kolefnisspor, lengir líftíma tækja og styður við raunveruleg umhverfismarkmið í rekstri,” segir Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður Notendalausna hjá OK.

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir