Tæknirisinn HP hefur kynnt nýja 14 tommu fartölvu, HP EliteBook 6 G2q, sem er knúin af nýjasta Qualcomm Snapdragon X2 örgjörva. „Um er að ræða spennandi framfaraskref í flokki fyrirtækjatölva þar sem afköst og rafhlöðuending vinna rosaleg vel saman“ segir Trausti Eiríksson vörustjóri PC lausna hjá OK.
Tölvan kemur með annaðhvort Snapdragon X2 Plus eða Snapdragon X2 Elite örgjörva og styður allt að 64 GB LPDDR5X-9600 vinnsluminni – sem er meðal þess öflugasta sem í boði er í þessum stærðarflokk. Þá er geymslurými einnig í fremstu röð, með möguleika á allt að 2 TB Gen5 SSD þannig að notendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að hafa ekki nægt pláss fyrir gögnin sín.
Skjárinn er í boði í mismunandi útfærslum og upplausnum, allt frá 1200p upp í 1600p, þar á meðal OLED valkostir. Með allt að 800 nits birtustigi er ljóst að hér er lögð áhersla á skýra og vandaða myndupplifun, jafnvel við krefjandi aðstæður.
HP leggur sérstaka áherslu á rafhlöðuendingu og segir hana geta náð allt að 28 klukkustundum á einni hleðslu – sem setur ný viðmið í þessum flokki og eykur sveigjanleika notenda verulega.
Að sögn Trausti er hér um að ræða afar spennandi viðbót við markaðinn: „Þessi vél sameinar mikla orkunýtni og afköst á þann hátt sem hentar sérstaklega vel nútíma vinnuumhverfi, þar sem hreyfanleiki og getan til að tengjast hvar sem er, hvenær sem er án vandræða, skiptir sífellt meira máli.“
HP EliteBook 6 G2q kemur í sölu í sumar.





