Þann 14. október hættir Microsoft formlega stuðningi við Windows 10 stýrikerfið. „Mælingar í september 2025 sýna fram á að allt að 40% af Windows tölvum á heimsvísu keyra enn Windows 10. Mælingar á Íslandi benda til allt að 37% tölva séu með Windows 10 en var um 47% í Júní. Slíkum búnaði fer því fækkandi,“ segir Arnar S. Gunnarsson öryggisstjóri OK.
Hann segir að mælingar sýni enn fremur fram á að allt að 150 milljón fyrirtækjatölvur keyri enn Windows 10 og geta því orðið sérstakt skotmark tölvuþrjóta því þær verða með tímanum viðkvæmari fyrir netárásum.
Aðlaðandi skotmark tölvuþrjóta
,,Þessi breyting felur í sér að Microsoft er hætt að veita Windows 10 stuðning og gefur ekki lengur út uppfærslur. Windows 10 er 10 ára gamalt stýrikerfi og í apríl á þessu ári uppgötvuðust 17 öryggis veikleikar í stýrikerfinu. Slíka veikleika verður hætt að lagfæra. Þeir geta gert hökkurum mögulegt að komast yfir gögn, lykilorð eða jafnvel ná stjórn á tölvum. Þær halda áfram að virka en frá og með 14. október munu ekki berast fleiri uppfærslur frá Microsoft,“ segir Arnar.
Hann segir að áhættan verði lítil fyrstu dagana en aukist eftir því sem líður á. ,,Samkvæmt mælingum er áætlað 150 milljón tæki eingöngu hjá fyrirtækjum séu í hættu. Þeir sem stunda innbrot í tölvukerfi leita alltaf veikustu hlekkjanna og þessi fjöldi af úreltum kerfum verður aðlaðandi skotmark fyrir árásir.“
Arnar bendir á að með tímanum mun annar hugbúnaður líka hætta að styðja Windows 10. ,,Það getur gerst hraðar en margir gera sér grein fyrir og algengt verður að forrit hætti að virka eftir uppfærslur. Fyrirtæki sem treysta á tækniaðstoð frá Microsoft gætu einnig lent í vandræðum, því þeir samningar falla líka út þegar stuðningi lýkur,“ segir hann.
Hvernig er hægt að uppfæra?
Arnar segir að flestar nýrri tölvur sé hægt að uppfæra beint í Windows 11. ,,Við mælum með því sú leið tryggir áframhaldandi öryggi og samhæfni. Þar sem tæki styðja ekki uppfærslu í Windows 11 er nauðsynlegt að fara í útskipti á vélbúnaði og við mælum með því.“
Microsoft hefur ákveðið að gefa fyrsta árið frítt af svokölluðum ESU-samning (Extended Security Updates) sem mun tryggja áframhaldandi öryggisuppfærslur en því fylgja allnokkrar kvaðir og takmarkanir að sögn Arnars.
,,Þessar kvaðir eru t.d. að þú verður að nota svokallaðan skýjanotanda frá Microsoft á tölvunni þannig að það mun ekki henta mörgum fyrirtækjum, OK ráðleggur sínum viðskiptavinum að uppfæra í Windows 11 þar sem það er mögulegt og að endurnýja tölvur þar sem það á ekki við. ESU-samningar ættu aðeins að vera notaðir sem bráðabirgðalausn, ekki til langs tíma,“ segir hann enn fremur.
Hafðu samband við sala@ok.is ef þið vanhagar upplýsingar um Windows uppfærslu eða nýjan tölvubúnað.