04.06.2026

Þarf skrifstofutölva virkilega 32 GB vinnsluminni?

Undanfarin ár hafa 32 GB af vinnsluminni (RAM) orðið sjálfgefinn staðall hjá mörgum fyrirtækjum þegar kemur að kaupum á nýjum fartölvum og borðtölvum. Á sama tíma hefur verð á vinnsluminni hækkað verulega og framboð á ákveðnum minnisuppsetningum verið takmarkaðra en áður. Það hefur orðið til þess að sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að endurmeta hvort sjálfgefið val á 32 GB sé alltaf rétt ákvörðun fyrir alla starfsmenn.

 

Spurningin er ekki hvort 32 GB sé góður kostur, því það er það sannarlega. Spurningin er frekar hvort það sé nauðsynlegt fyrir alla notendur. Í mörgum tilfellum getur 16 GB eða 24 GB vinnsluminni verið fullkomlega nægjanlegt og skilað sömu notendaupplifun í daglegri vinnu, á lægri kostnaði og með meira framboði á búnaði.

 

Hvernig hefur vinnuumhverfið breyst?

 

Tölvur dagsins í dag eru öflugri en áður og ráða mun betur við samtímis notkun margra forrita en áður. Fyrir hefðbundna skrifstofuvinnu þýðir þetta að notendur geta unnið í mörgum kerfum og með fjölda vafraflipa án þess að upplifa afkastavandamál í daglegri notkun. Algeng vinnuumhverfi í dag samanstendur af forritum á borð við Outlook, Teams, Word, Excel, PowerPoint og vöfrum með mörgum opnum flipum samtímis. Þetta er orðið normið í flestum skrifstofuumhverfum frekar en undantekning.

 

Í slíkum aðstæðum nægir 16 GB vinnsluminni í flestum tilfellum vel fyrir hefðbundna notkun, á meðan 24 GB veitir aukið svigrúm fyrir notendur sem vinna með þyngri skjöl, meiri fjölverkavinnslu eða vilja meiri svigrúm án þess að stökkva beint í 32 GB.

 

 

Hvar passar 24 GB inn í myndina?

 

Þangað til nýlega stóðu fyrirtæki oft frammi fyrir einföldu vali: 16 GB eða 32 GB. Með nýrri minnisuppsetningum hefur 24 GB hins vegar orðið raunhæfur millivegur. Fyrir marga notendur býður 24 GB upp á aukið svigrúm fyrir stærri Excel-skrár, mörg samskiptaforrit og umfangsmeiri vafranotkun án þess að fara í kostnaðinn sem fylgir 32 GB. Þetta gefur fyrirtækjum betra tækifæri til að samræma vélbúnað við raunverulegar þarfir starfsmanna í stað þess að velja sömu uppsetningu fyrir alla.

 

Hvað með gervigreindina?

 

Ein algengasta spurningin sem við fáum í dag snýr að gervigreindarverkfærum eins og Copilot, ChatGPT og öðrum lausnum sem eru að festa sig í sessi á vinnustöðum. Margir gera ráð fyrir að notkun slíkra lausna kalli sjálfkrafa á 32 GB vinnsluminni eða meira. Í raun fer stærstur hluti vinnslunnar fram í skýinu og hefur því oft minni áhrif á vinnsluminnisþörf tölvunnar en margir halda.

 

Á sama tíma eru nýjustu kynslóðir fartölva að koma með sérstakar gervigreindareiningar (NPU) sem munu taka við sífellt stærri hluta af þessari vinnslu. Margar nýjar vélar sem nú eru að koma á markað eru með 40 TOPS eða meira af AI-afli og eru sérstaklega hannaðar til að styðja við næstu kynslóð AI-lausna á borð við Copilot+ PC. Fyrirtæki geta þannig verið vel undirbúin fyrir framtíðina án þess að þurfa sjálfkrafa að velja stærstu mögulegu minnisuppsetninguna fyrir alla notendur.

 

 

Hvað veldur því að umræðan er að breytast?

 

Á sama tíma og fyrirtæki eru að skoða þarfir sínar betur hefur eftirspurn eftir vinnsluminni aukist verulega á heimsvísu. Miklar fjárfestingar í gervigreind, gagnaverum og skýjalausnum hafa aukið eftirspurn eftir minni og haft áhrif á verð og framboð einstakra íhluta. Þó að minni fyrir gagnaver og fartölvur sé ekki alltaf sami markaðurinn byggir framleiðslan á mörgum sömu undirliggjandi framleiðsluferlum og hefur aukin eftirspurn því áhrif á verðþróun og framboð víðar á markaðnum. Því skiptir meira máli en áður að velja réttan búnað fyrir rétt verkefni. Þegar fyrirtæki kaupa 32 GB fyrir alla notendur án þess að greina raunverulega þörf getur það leitt til hærri kostnaðar án þess að notendur upplifi marktækan ávinning í daglegri vinnu.

 

Hvað hentar þínum notendum?

16 GB

Hentar mjög vel fyrir almenna skrifstofuvinnu, tölvupóst, Teams, Microsoft 365, vafranotkun og hefðbundna fjölverkavinnslu.

24 GB

Hentar þeim sem vinna með stærri gagnaskrár, umfangsmeiri Excel-vinnslu, mörg opin forrit samtímis eða vilja meira svigrúm til framtíðar.

32 GB og meira

Hentar notendum með sértækt vinnuálag, svo sem umfangsmikla gagnavinnslu, sýndarvélar, hugbúnaðarþróun, hönnunarvinnu, myndbandsvinnslu eða önnur verkefni sem nýta mikið minni.

 

Niðurstaðan:

 

Það er ekkert að 32 GB vinnsluminni. Fyrir marga notendur er það rétt ákvörðun.
Hins vegar er mikilvægt að fyrirtæki taki ákvörðun út frá raunverulegri notkun en ekki gömlum viðmiðum eða almennum reglum. Fyrir stóran hluta skrifstofunotenda geta 16 GB eða 24 GB veitt framúrskarandi upplifun, lægri kostnað og meira framboð á búnaði þegar kemur að endurnýjun tölvukosts. Rétta spurningin er því kannski ekki hvort 32 GB sé of mikið, heldur hvort allir þurfi á því að halda.

 

Höfundur: Trausti Eiríksson vörustjóri PC lausna hjá OK. 

trausti@ok.is

Deildu færslu

Nýjasta bloggfærsla