Search
Close this search box.

03.06.2025

Allt að 500 milljón tæki enn í hættu

Rétt rúmir 4 mánuðir til stefnu – Allt að 500 milljón tæki enn í hættu

Núna eru rétt um fjórir mánuðir til stefnu, en 14. október næstkomandi mun Microsoft formlega hætta að styðja Windows 10 stýrikerfið. En hvað þýðir það – og hvað gerist þann dag?

Hvað þýðir þetta?

Þetta þýðir að Microsoft hættir að veita Windows 10 stuðning og gefur ekki lengur út uppfærslur. Í hugbúnaðarheiminum er eðlilegt að upp komi gallar og veikleikar – og jafnvel þó Windows 10 sé að verða 10 ára, þá finnast enn öryggisholur sem þarf að laga. Mikilvægastar eru svokallaðar öryggisuppfærslur sem koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar komist yfir gögn, lykilorð eða jafnvel stjórn á tölvum.

Hvað gerist 14. október?

Tölvurnar sjálfar halda áfram að virka – en frá og með þeim degi munu ekki berast fleiri uppfærslur frá Microsoft.

Hver er öryggisáhættan?

Áhættan verður lítil fyrstu dagana en eykst eftir því sem líður á. Samkvæmt mælingum gætu allt að 500 milljón tæki enn keyrt Windows 10 síðar á árinu – mörg þeirra án möguleika á uppfærslu. Þeir sem stunda innbrot í tölvukerfi leita alltaf veikustu hlekkjanna – og þessi fjöldi af úreltum kerfum verður aðlaðandi skotmark fyrir árásir.

Eru aðrar áhættur?

Já, með tímanum mun annar hugbúnaður líka hætta að styðja Windows 10. Það getur gerst hraðar en margir gera sér grein fyrir – og algengt verður að forrit hætti að virka eftir uppfærslur. Fyrirtæki sem treysta á tækniaðstoð frá Microsoft gætu einnig lent í vandræðum, því þeir samningar falla líka út þegar stuðningi lýkur.


Hvaða lausnir eru í boði?

Uppfærsla í Windows 11

Flestar nýrri tölvur er hægt að uppfæra beint í Windows 11. Þetta er ráðlegasta leiðin og tryggir áframhaldandi öryggi og samhæfni.

Endurnýjun tölvubúnaðar

Þar sem tæki styðja ekki uppfærslu í Windows 11 er nauðsynlegt að fara í útskipti á vélbúnaði. Þetta á við um allt að 500 milljón tölvur á heimsvísu.

ESU-samningar – tímabundin lausn

Hægt er að kaupa svokallaðan ESU-samning (Extended Security Updates) frá Microsoft. Þeir tryggja áframhaldandi öryggisuppfærslur í allt að þrjú ár, en:

  • – Þeir ná eingöngu til öryggisuppfærslna – ekki annars stuðnings.

  • – Þeir verða sífellt dýrari – verðið tvöfaldast á hverju ári.

  • – Ekki er hægt að kaupa eingöngu ár 2 eða 3 nema hafa greitt fyrir ár 1.

  • – Verðið fyrir fyrsta árið er um 10.000 kr. á tölvu.

  • – Annar hugbúnaður gæti samt hætt að virka óháð þessu.

  • – Microsoft veitir ekki almenna aðstoð við önnur vandamál þó ESU sé til staðar.


Hvað ráðleggjum við?

OK ráðleggur sínum viðskiptavinum að uppfæra í Windows 11 þar sem það er mögulegt – og að endurnýja tölvur þar sem það á ekki við. ESU-samningar ættu aðeins að vera notaðir sem bráðabirgðalausn, ekki til langs tíma.

Skoðaðu úrval af HP tölvum með Windows 11 í vefverslun OK.

Arnar S. Gunnarsson, forstöðumaður öryggislausna OK.

Deildu færslu