19.10.2026

Tölvur sem fylgjast með eigin heilsu

Það er ekki bara hægt að keyra gervigreind beint á vinnustöðvum og öflugum fartölvum. Það getur líka verið skynsamlegur kostur. Þetta var meðal þess sem Hans Petter Espelid, sérfræðingur hjá HP Nordic í gervigreind og vinnustöðvum, fjallaði um fyrir fullum sal á hádegisfundi OK og HP á Hilton Reykjavík á dögunum.

Margar nýjar tölvur eru orðnar nægilega öflugar til að sinna gervigreindarverkefnum á tölvunni sjálfri. Þannig má vinna með viðkvæm gögn án þess að senda þau í skýið. Fyrir rétt verkefni getur það skilað hraðari svörun, aukinni stjórn á gögnum og minni kostnaði við skýjaþjónustu.

Á fundinum tók Hans Petter einnig dæmi um svonefnt Agentic AI, gervigreind sem getur skipulagt og framkvæmt verkefni út frá markmiðum og heimildum sem notandinn skilgreinir. Slíkar lausnir geta tekið að sér fleiri skref í vinnuferlinu og dregið úr handavinnu.

Greinir vandamál áður en þau trufla vinnuna

Vanessa Wilson, sérfræðingur hjá HP Nordic, kynnti WXP (Workforce Experience Platform), skýjalausn frá HP sem fylgist með ástandi og afköstum tölvubúnaðar. Lausnin hjálpar UT-deildum að greina viðvörunarmerki og sjá hvaða tölvur þarfnast athygli, viðhalds eða uppfærslu.

Þannig gefst tækifæri til að bregðast við áður en vandamál hafa áhrif á vinnu notenda, í stað þess að slökkva elda eftir á. Markmiðið er færri truflanir, betri nýting búnaðar og meiri tími fyrir önnur verkefni.

Öryggi sem nær undir yfirborðið

Anders Mørk Jakobsen frá HP Nordic fjallaði um öryggislausnir í HP tölvum. Þar á meðal er vörn sem getur greint óheimilar breytingar á grunnhugbúnaði tölvunnar og endurheimt örugga útgáfu hans.

Einnig var fjallað um lausn sem opnar tiltekin skjöl og vefefni í einangruðu umhverfi til að hindra að spilliforrit nái til annarra hluta tölvunnar. Þessir eiginleikar eru í boði á HP tölvum.

Sameiginlegi þráðurinn á fundinum var skýr: Með öflugum búnaði, betri yfirsýn og fyrirbyggjandi vörnum geta fyrirtæki dregið úr truflunum og fengið meira út úr tölvubúnaðinum sínum.

 

 

Deila frétt

Nýjustu fréttir